Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi

Þann 21. október voru tvö fjölskyldufyrirtæki á Selfossi, í eigu sömu eigenda, lýst gjaldþrota. Samkvæmt heimildum DV á lítil björgunarsveit, Bára á Djúpavogi, með rúmlega 50 skráða félaga, tugmilljóna kröfu á hendur öðru fyrirtækinu, vegna viðskipta með stálgrindarhús sem voru pöntuð og greidd, en hafa aldrei borist. 

Félögin sem lýst voru gjaldþrota 21. október eru Slípun-Kjartansstaðir, sem hafði sögun, heflun og fúavörn á viði að starfsemi, og Byggjum ehf, sem rak Byggjum saman, heildverslun með timbur, byggingarefni og hreinlætistæki.

DV birti frétt um starfsemi Byggjum saman í lok janúar á þessu ári, undir yfirskriftinni: 

Varað við fjölskyldufyrirtæki á Selfossi – „Þetta eru svik og stuldur, ekkert annað“

Í fréttinni var rætt við illa svikna viðskiptavini Byggjum saman sem höfðu ekki fengið afhentar vörur sem þeir höfðu greitt fyrir. Sumir höfðu rift kaupum en gekk illa að fá endurgreitt. Í fréttinni segir meðal annars að systkinin Marinó Þór Jónasson og Áslaug Jónasdóttir, sem reka saman fyrirtækið Bitrugerði ehf. á Akureyri, hafi pantað vörur hjá Byggjum saman í byrjun árs 2024 fyrir hátt í fimm milljónir króna. Þessar vörur hafa aldrei skilað sér.

Jón Stefán Hjaltalín, lögmaður systkinanna í Bitrugerði, kærði Byggjum saman til Lögreglunnar á Suðurlandi þann 20. ágúst árið 2024 eftir margra mánaða árangurslausa bið þeirra eftir vörum sem þau höfðu greitt fyrir, upp á rétt um 4,5 milljónir króna.

Margir aðrir sviknir viðskiptavinir Byggjum saman tjáðu sig við DV um málið og höfðu keimlíka sögu að segja, greiddar vörur höfðu ekki skilað sér og hvorki gekk né rak við að fá endurgreiðslu. 

Byggum saman var lagerslaus heildverslun  sem flutti inn byggingarvörur erlendis frá samkvæmt pöntunum. Leitað var hagstæðra verða en pöntuðum vörum var safnað í gám í innkaupalandinu og þegar gámurinn var orðinn fullur var hann sendur heim til Íslands. Á þeim tímapunkti greiddi viðskiptavinurinn annaðhvort helminginn af verði vörunnar eða fullgreiðir hana.

Mörg dæmi eru um að vörur pantaðar já Byggjum saman hafi skilað sér afar seint til viðskiptavina eða aldrei. Sumir viðskiptavinir hafa gefist upp á biðinni og sviknum loforðum og afsökunum frá eigendum fyrirtækisins og rift kaupum. En ekki var hlaupið að því að fá vöruna endurgreidda.

Snjóbolti sem þau velta undan sér

Lögmaðurinn Jón Stefán Hjaltalín sagði við DV í janúar að Byggjum saman notaði fé sem kæmi inn vegna greiddra pantana til að greiða upp vanskilaskuldir vegna fyrri pantana. 

„Þetta vindur upp á sig, þetta er snjóbolti sem þau velta á undan sér,“ sagði hann. Benti hann á að óheimilt er að nota fjármunina sem viðskiptavinir greiða fyrir pantanir sínar í annað en að leysa út þær vörur.

Eigendur Byggjum saman voru hjónin Axel Kjartan Baldursson og Þórunn Helga Sigurðardóttir frá Selfossi. DV ræddi við Þórunni í janúar sem sagði að verið væri að taka til í rekstrinum og allar skuldir við viðskiptavini yrðu gerðar upp á næstunni. Hún kenndi slæmum  birgjum um þau tilvik sem voru rakin í greininni en vildi að öðru leyti lítið tjá sig um málið. 

Axel Kjartan Baldursson kærði hins vegar DV og blaðamann vegna greinarinnar til siðanefndar blaðamanna. Kærunni var vísað frá. 

Saunaklefinn sem aldrei kom

Maður sem ekki vill koma fram undir nafni afhenti DV afrit af kæru sinni á hendur Byggjum saman. Málið snerist um gufubaðsklefa sem átti setja upp í sumarhúsi mannsins. Gripurinn kostaði um 700 þúsund krónur og var pantaður í maí árið 2025. Þann 2. júní kom reikningur fyrir vörunni sem maðurinn greiddi í gegnum greiðslugáttina Payday. Eindagi reikningsins var 3. júní og var hann greiddur þann dag.

Gufubaðsklefinn átti að koma um miðjan júlí en þegar maðurinn hafði ekkert heyrt frá Byggjum saman hafði hann samband 7. ágúst til að forvitnast um stöðuna. Fékk hann þau svör að tafir hefðu orðið hjá birgjanum en varan kæmi í síðasta lagi í annarri viku í september.

Ekkert bólaði þó á sendingunni en er hann hafði samband þann 10. október var honum tjáð að sánan væri komin til landsins, hún væri í geymslu á Selfossi og hægt væri að keyra hana heim til mannsins hvenær sem hentaði. Af því varð þó aldrei og þann 10. nóvember var manninum nóg boðið og sendi töluvpóst með reikningsupplýsingum og ósk um riftun á kaupunum og endurgreiðslu.

DV hafði samband við þennan mann aftur við vinnslu þessarar fréttar og staðfesti hann að hvorki sánaklefinn né endurgreiðsla hefði nokkurn tíma borist. Kærði hann eigendur Byggjum saman til lögreglu vegna málsins þar sem hann taldi að um sviksamleg viðskipti væri að ræða og kerfisbundin svik. Maðurinn hefur síðan tilkynnt skiptastjóra þrotabúsins að hann geri kröfu í búið en áður en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota var hann að undirbúa fjárnámsbeiðni til sýslumanns.

Stór skellur björgunarsveitar

Skiptastjóri beggja þrotabúanna, Slípun-Kjartansstaðir og Byggjum, er Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður. DV spurði hann út í stærð gjaldþrotanna og sagðist hann engu geta svarað um það þar sem vinna við þrotabúin væri nýlega farin af stað. Hann sagðist hvorki geta veitt upplýsingar um nöfn kröfuhafa né mögulegar upphæðir væntanlegra krafna. 

Heimildir  DV herma hins vegar að Bára eigi  ekki undir 20 milljónum króna hjá þrotabúinu sem hlýtur að vera þungt högg fyrir svo litla björgunarsveit. Rétt er að taka fram að kærulýsingarfrestur er ekki liðinn og DV hefur ekki staðfestar upplýsingar um fjárhæð væntanlegrar kröfur Báru eða annarra kröfuhafa. 

DV hafði samband við einn helsta forsvarsmann Báru, Reyni Arnórsson, sem hefur verið félagi í sveitinni allt frá árinu 1978. Hann kannaðist við málið en sagðist ekki vilja tjá sig um það og lýsti því raunar yfir að félagar í Báru myndu ekki svara fjölmiðlum í neinu um þetta mál. DV hafði einnig samband við formann sveitarinnar, Inga Ragnarsson, sem sagði ekki tímabært að tjá sig um málið á þessu stigi. 

Rekstur björgunarsveita sjálfstæður

DV hafði samband við Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Aðspurður sagðist hann ekki kannast við málið en aflaði sér upplýsinga um það og ræddi síðan stuttlega við DV. Jón bendir á að rekstur björgunarsveita sem eru innan vébanda Landsbjargar sé sjálfstæður „og aðskilinn frá rekstri heildarsamtakanna.“  Segir hann málið ekki vera á borði Landsbjargar. „Hér er einfaldlega um að ræða gjaldþrot hjá birgja og slíkt gerist reglulega. En þess vegna lendir björgunarsveit í því að eiga kröfu í þrotabúið. Það er vissulega óheppilegt.“ Aðspurður um hvaða áhrif þetta hefur á rekstur Báru segist hann ekki vita það. „Hver einasta sveit er með sinn sjálfstæða fjárhag en ég veit ekki hvernig fjárhagur þessarar einingar stendur. En það hefur auðvitað áhrif á alla að tapa peningum.“

Ekki náðist í eigendur Byggjum ehf við vinnslu fréttarinnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab