Segist ekki hafa verið að senda hálfsystkinum sínum tóninn
Jamie Lee Curtis segist hafa átt við fjölskylduna sem hún ólst upp með þegar hún skrifaði á Instagram á 68 ára afmæli sínu að hún væri ein eftir af sínum nánustu. Sumir lásu úr orðum leikkonunnar að hún væri að senda hálfsystkinum sínum tóninn.
Curtis átti afmæli sunnudaginn 22. nóvember og sagðist sakna eldri systur sinnar, Kelly Lee Curtis, sem lést 30. maí, 69 ára að aldri. Foreldrar þeirra, leikararnir Janet Leigh og Tony Curtis, eru báðir látnir og stjúpfaðir þeirra, Robert Brandt, lést árið 2009.
„Í guðanna bænum, internetið. Í alvöru? Er svona lítið að frétta að þið þurfið að gera úr þessu eitthvert rifrildi eða láta eins og ég sé að senda einhverjum tóninn?“ skrifaði Curtis í annarri færslu á Instagram í gær.
„Ég átti við mömmu og pabba, Kelly systur mína og stjúpföður minn sem ól mig upp.“
Fjölskyldan kom saman á dögunum
Tony Curtis eignaðist fjögur börn í tveimur síðari hjónaböndum. Curtis sagðist vera í sambandi við hálfsystkini sín og afkomendur þeirra. Fjölskyldan hefði til að mynda komið nýlega saman til að fagna fermingu og öll syrgðu þau Kelly.
Í afmælisfærslunni sagðist Curtis þakklát þeim sem hefðu rutt henni brautina með fordæmi sínu. Hún kvaðst vona að hún gæti gert slíkt hið sama fyrir fjölskyldu sína og vini.
Sérstakar þakkir færði hún eiginmanni sínum, dætrum sínum og fjölskyldum þeirra og ungum dóttursyni sínum. Þau ætlaði hún öll að hitta á afmælisdaginn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗