Segja framlög rýrna um nærri 30%
Ráðið vill að fjárhagsrammi nýrrar áætlunar verði endurskoðaður með hliðsjón af verðlagsþróun. mbl.is/Golli
Byggðarráð Húnaþings vestra telur að framlög til byggðaáætlunar verði nærri 30% lægri að raunvirði á árunum 2027–2031 en gert var ráð fyrir í gildandi áætlun fyrir árin 2022–2026.
Ráðið vill að fjárhagsrammi nýrrar áætlunar verði endurskoðaður með hliðsjón af verðlagsþróun.
Þetta kemur fram í umsögn ráðsins um þingsályktunartillögu innviðaráðherra um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027–2041. Umsögnin var birt á vef Alþingis í gær.
Tillagan felur í sér stefnu til fimmtán ára og aðgerðaáætlun fyrir fyrstu fimm árin.
Í gildandi áætlun var gert ráð fyrir 4.392 milljónum króna til byggðaáætlunar á fimm árum, miðað við verðlag í fjárlögum ársins 2022.
Í nýju tillögunni er gert ráð fyrir 3.985 milljónum króna á næsta fimm ára tímabili. Munurinn á fjárhæðunum er 407 milljónir króna, eða rúm 9%, áður en tekið er tillit til verðlagsbreytinga.
Óbreytt framlag rýrnar að raunvirði
Byggðarráð bendir á að í nýju tillögunni sé áfram gert ráð fyrir 700 milljónum króna til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum á fimm árum. Að mati ráðsins þyrfti framlagið að nema um 899 milljónum króna á verðlagi í október 2026 til að halda sama raunvirði og árið 2022.
Ráðið áætlar jafnframt að framlag byggðaáætlunar til almenningssamgangna lækki um 28,2% að raunvirði.
Ráðið leggur til að framlög til sóknaráætlana landshluta fylgi að minnsta kosti verðlagi. Það vill einnig að fram komi í byggðaáætlun hvernig framlög breytast frá fyrri áætlun, bæði að nafnvirði og að raunvirði.
Vilja tryggja fjármögnun helstu aðgerða
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lýsa í sérstakri umsögn áhyggjum af því að fjármögnun áætlunarinnar dugi til að ná markmiðum hennar. Samtökin vilja að fé til helstu aðgerða verði tryggt í fjármálaáætlun og að árlega verði gerð grein fyrir því hvaða aðgerðir hafi verið fjármagnaðar og komist til framkvæmda.
Í greinargerð tillögunnar kemur fram að alls sé gert ráð fyrir 9.101 milljón króna til byggðamála á árunum 2027–2031. Þar af eru 3.985 milljónir ætlaðar byggðaáætluninni sjálfri. Framkvæmd einstakra aðgerða er háð fjárlögum og fjármálaáætlun hverju sinni.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/6/64/664557.jpg)