Tvö sjávarútvegsfyrirtæki semja við kanadískt tæknifyrirtæki
Harðfisksþurrkunin Von og Akraborg sem er dótturfyrirtæki Lýsis hafa samið við kanadískt tæknifyrirtæki.
EnWave var stofnað árið 1999 og er skráð á hlutabréfamarkað í Kanada. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun þurrkunartækni fyrir matvælaiðnað og hefur tekjur af sölu framleiðslubúnaðar og leyfisgjöldum vegna nýtingar tækninnar.
Um er að ræða Akraborg, sem tilheyrir fyrirtækjasamstæðu Lýsis, og Von harðfiskverkun í Hafnarfirði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá kanadíska fyrirtækinu.
Í samstarfi við alþjóðlega matvælarisa
EnWave var stofnað árið 1999 og er skráð á hlutabréfamarkað í Kanada. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun þurrkunartækni fyrir matvælaiðnað og hefur tekjur af sölu framleiðslubúnaðar og leyfisgjöldum vegna nýtingar tækninnar.
Akraborg var stofnuð á Akranesi árið 1989 og er meðal stærstu framleiðenda niðursoðinnar þorsklifur í heiminum. Undir merkjum Fang er meðal annars framleitt gæludýrafóður úr aukaafurðum sem falla til við vinnslu í sjávarútvegi.
Von harðfiskverkun er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 2002. Fyrirtækið framleiðir meðal annars harðfisk og bitafisk undir vörumerkinu Gullfiskur.
Greiða einkaleyfisgjöld
Tæknin sem Akraborg og Von fá aðgengi að byggist á þurrkun með örbylgjum við undirþrýsting sem gerir kleift að þurrka hráefni við tiltölulega lágt hitastig og varðveita þannig betur bragð, áferð og næringarefni.
Samningarnir veita íslensku fyrirtækjunum einkarétt til nýtingar á tækninni hér á landi á tilteknum framleiðslusviðum gegn greiðslu leyfisgjalda.
Slíta samningi við annað íslenskt fyrirtæki
Forsvarsmenn EnWave telja möguleika á því að íslensku fyrirtækin auki framleiðslugetu sína á næsta fjárhagsári gangi markaðssetning afurðanna vel.
Samhliða samningagerðinni var samningi EnWave við íslenska fyrirtækið Responsible Foods slitið og tvö framleiðslutæki þess færð til Akraborgar og Vonar.
Ekki er upplýst um fjárhagslegt umfang samninganna eða ástæður þess að samningi við Responsible Foods var slitið.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗