Meiðsli Orra ekki alvarleg
Orri Freyr Þorkelsson, landsliðsmaður í handbolta, reiknar með að geta leikið með portúgalska liðinu Sporting gegn þýska liðinu Magdeburg í Meistaradeild Evrópu á morgun þrátt fyrir eymsli í öxl.
Hann var ekki í hópnum þegar Sporting vann Avanca, 41:25, í portúgölsku úrvalsdeildinni á sunnudag. Í samtali við Handkastið sagði hann fjarveruna hafa verið varúðarráðstöfun.
„Ég er búinn að vera með verk í öxlinni í svolítinn tíma og var látinn hvíla einn leik til að jafna mig aðeins á því. Ekkert alvarlegt og ég verð klár í næsta leik,“ sagði Orri Freyr við Handkastið.
Sporting sækir Magdeburg heim á morgun. Bæði lið eru með sex stig í öðrum milliriðli Meistaradeildarinnar, líkt og Barcelona.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗