Rannsaka hlutverk JD Vance í ábatasömum olíuviðskiptum styrktaraðila hans í Venesúela
Pressan
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 18:30
JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna. Mynd/Getty
Nefnd á vegum Bandaríkjaþings rannsakar nú hvort varaforsetinn, JD Vance, hafi átt þátt í því að hráolíurisinn Vitol fékk ábatasaman olíusamning í Venesúela. Frá þessu greinir Reuters en miðillinn hafði áður greint frá fundi Vance og Johns Addison hjá Vitol sem átti sér stað viku áður en Bandaríkjaher réðst inn í Venesúela og handsamaði forsetann Nicolás Maduro.
„Ég skrifa þetta í dag vegna þungra áhyggna af því að þú kunnir að hafa notað stöðu þína sem varaforseti til að hjálpa stórum pólitískum styrktaraðila að tryggja sér ábatasöm viðskiptatækifæri tengd olíu frá Venesúela,“ segir í bréfi sem öldungadeildarþingmaður demókrata, Maggie Hassan, sendi varaforsetanum. Hassan er verðandi formaður heimavarna- og stjórnsýslunefndar öldungadeildarinnar og tekur við stöðunni þegar nýtt þing tekur til starfa eftir áramót. Hassan hefur krafist þess að embætti varaforseta afhendi fjölda gagna fyrir 14. desember, þar á meðal samskipti Vance eða starfsfólks hans við Addison eða Vitol.
Umræddur fundur Vance og Addison átti sér stað í desember árið 2025 þegar varaforsetinn var staddur á lúxusskíða- og golfstaðnum Yellowstone Club í Montana. Addison starfaði á þeim tíma fyrir Vitol en lét svo af störfum fyrr á þessu ári. Addison hafði enga sérþekkingu á viðskiptum með hráolíu en ræddi engu að síður við Vance um málefni Venesúela en varaforsetinn vildi vita hversu hratt væri hægt að selja hráolíu frá Venesúela ef svo færi að Bandaríkin fengju yfirráð yfir olíubirgðum landsins. Addison mun hafa fullvissað varaforsetann um að Vitol væri vel í stakk búið til að sinna því verkefni.
Bæði Vance og Addison neita því að fundurinn hafi átt sér stað. Hassan skrifar í áðurnefndu bréfi að þrátt fyrir neitanir varaforsetans þá hafi flugskrár sýnt að einkaþotur hans og Addison hafi verið á sama flugvelli í Montana þegar fundurinn á að hafa átt sér stað.
Reuters rekur að skrifstofa Vance hafi sagt í tilkynningu vegna fréttaflutnings: „Meintur fundur á flugvellinum átti sér aldrei stað“ en miðillinn bendir á að hvergi í upphaflegu fréttinni hafi verið tilgreint að fundurinn hefði farið fram á flugvellinum.
Addison hefur staðfest að orkumálaráðherra Bandaríkjanna hafði samband við hann tveimur dögum eftir að Maduro var handtekinn. Hafi Addison þar fengið tilboð sem væri of gott til að hafna. Innan fárra daga fengu Vitol og keppinautur þess, Trafigura, sérstök leyfi til að selja olíu frá Venesúela og hafa fyrirtækin síðan þénað hundruð milljóna dollara að mati óháðra sérfræðinga. Addison hefur verið fjárhagslegur bakhjarl varaforsetans og styrkti framboð hans til öldungadeildar árið 2022 um rúmar 38 milljónir króna. Árið 2024 lögðu Addison og eiginkona hans hátt í 900 milljónir til pólitískra aðgerðarnefnda til að hjálpa Trump að verða forseti á ný.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗