Aron Jó opnar sig loks um viðskilnaðinn við Val: Fátt um svör á fundi með stjórninni - „Segja að ég megi ekki mæta á æfingu“
Aron Jóhannsson, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og nú umboðsmaður, opnaði sig um viðskilnaðinn við Val í hlaðvarpinu Sjöunni í dag, um ári eftir að kappanum var tilkynnt um að hann fengi ekki að æfa og spila með Hlíðarendafélaginu framar.
Aron hafði verið stór hlekkur í liði Vals frá því hann sneri heim úr atvinnumennsku 2022 en yfirmenn hjá félaginu vildu ekki nýta krafta hans á síðustu leiktíð. Hann var þó samningsbundinn og fékk greitt frá félaginu.
„Ég var búinn að heyra af því í einhvern tíma að þeir ætluðu að losa sig við einhverja menn. Það var skrýtið hvernig var farið að þessu. Ég var búinn að tala við stjórnina um veturinn og þeir sögðu að þetta væri ekkert svona, ég væri með samning áfram og þeir væru spenntir fyrir því að fá mig aftur. Ég var að æfa mikið upp í Val í fríinu og þá eg ég tekinn á fund og þeir segja að ég megi ekki mæta á æfingu. Ég spyr af hverju og þeir sögðust bara vera búnir að taka ákvörðun um að ég fengi ekki að spila mínútu á næsta ári. Ég fann bara að það var ekkert hægt að snúa þessari ákvörðun við. Ég bauðst til að vera áfram í starfi þriðja þjálfara, framherjaþjálfara eða eitthvað því auðvitað þarf maður að hugsa um eitthvað eftir ferilinn. Þeir vildu gefa einhverjum öðrum pláss,“ sagði Aron í Sjöunni.
Hann veltir því fyrir sér hvers vegna Hermann Hreiðarsson, sem tók við sem þjálfari Vals fyrir síðustu leiktíð en var látinn fara snemma á tímabilinu, hafi ekki fengið að taka ákvörðun um framtíð Arons hjá félaginu.
„Ég pæli í því af hverju þjálfarinn fékk ekki bara að taka þessa ákvörðun. Ég átti mjög gott spjall við Hemma og mér fannst á honum að hann vildi hafa mig áfram. Af hverju má hann þá ekki bara leyfa mér að æfa og ef ég er svona ómögulegur eins og stjórnin vill meina tekur hann ákvörðunina. Ef hann hefði fengið að taka þá ákvörðun hefði hann áttað sig á því að ég er ekki svona mikið fífl eins og einhverjir vilja meina.“
Aron Jó í leik með Val. Mynd/Ernir Eyjólfsson
Valur átti hörmulegt tímabil í ár og endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar. Aron varði miklum tíma er hann var enn leikmaður félagsins að reyna að bæta liðið og leikmenn.
„Ég er með miklar skoðanir og er mjög kröfuharður. En ég held að það sé alveg auðséð eftir þetta tímabil að ég hafi ekki verið vandamálið. Þeir enda í áttunda sæti og allt sem var í gangi þarna. Undanfarin ár hef ég mikið reynt að hjálpa mönnum að verða betri. Ég veit ekki hversu marga leiki Vals ég er búinn að horfa á aftur, koma með klippur fyrir hina og þessa leikmenn til að reyna að hjálpa okkur öllum að verða betri. Það er kannski það sem enginn hefur heyrt nema leikmenn Vals. Ég veit ekki hversu mörgum klukkutímum ég hef eytt af minni ævi í að klippa einhver myndbönd.“
Aron segist þó í raun feginn að Valur hafi tekið þessa ákvörðun fyrir hann eftir á að hyggja, vegna þeirra meiðsla sem hann hefur glímt við.
„Eftir á að hyggja er ég nokkuð viss um að ég hefði haldið áfram að spila fótbolta. Síðustu 2-3 ár í Val hefur verið mikið um meiðsli og það er kannski bara Einar sjúkraþjálfari hjá Val og Bryndís konan mín sem vita hvað maður er búinn að ganga í gegnum. Þegar Gylfi kom tók ég næstum heilt tímabil þar sem ég gat í raun hvorki sparkað í boltann með vinstri né hægri fastar en svona 50 prósent. Vakna alla daga með hásinavesen og svona. Maður lagði ansi mikið á sig fyrir Val og því eru smá vonbrigði að enda þetta svona.
En þegar ég horfi til baka er ég líka ævintýralega sáttur við stjórn Vals að leyfa mér að sleppa við þetta tímabil því ég væri sennilega raddlaus eftir að hafa spilað með þeim síðastliðið ár og horft á hvað er búið að vera að gerast þarna. Ég er þakklátur að Valur hafi tekið þessa ákvörðun fyrir mig því ég er þannig týpa að ég hefði þjösnast áfram, sennilega fengið annan samning og endað á að vera borinn út af.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗