Hafnar því að heimsending auki aðgengi að áfengi
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, hafnar því að heimsendingar feli í sér aukið aðgengi að áfengi. Takmörkunum verði áfram sinnt þó um sé að ræða aukna þjónustu og á því sé munur.
Hún segir reynslu af heimsendingum hjá systurverslunum í Noregi og Svíþjóð hafa sýnt að heimsendingar leiði ekki til aukinnar heildarneyslu.
ÁTVR tilkynnti í gær að heimsendingar væru hafnar. Pósturinn mun sjá um heimsendingar áfengis fyrir ÁTVR og mun afhending taka einn til þrjá daga frá því að pöntun er lögð inn.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýndi upptöku heimsendinga í samtali við mbl.is í gær og sagði það furðulegt að ríkisstofnunin stuðlaði að auknu aðgengi að áfengi á sama tíma og rætt væri um lýðheilsuhlutverk ÁTVR, sem fælist í því að takmarka aðgengi að áfengi að hans sögn.
Breiðara vöruúrval
Þorgerður segir tilgang heimsendinganna annan en að auka aðgengi að áfengi.
„Birgjar hafa kvartað undan því að komast ekki í hillur ÁTVR en með því að taka upp heimsendingu þá erum við í rauninni að veita aðgengi að breiðara vöruúrvali í vefverslun heldur en er í verslunum ÁTVR,“ segir Þorgerður.
En eru heimsendingar, til að mynda í byggðir úti á landi, ekki til marks um aukið aðgengi fólks að áfengi?
„Nei, þetta er ekki aukið aðgengi í skilningi lýðheilsumarkmiða og hlutverks ÁTVR. Þetta er bara þróun í þjónustuleið. Vissulega getur þetta verið þægilegra fyrir einhverja en þeir hafa aðgengi að áfengi nú þegar. Niðurstöður á Norðurlöndum sýna að heimsending er ekki að auka heildarsölu áfengis,“ segir Þorgerður Kristín.
Ruglings gæti um hlutverk ÁTVR
Hún segir að ÁTVR hafi þjónustuhlutverki að gegna samkvæmt lögum um stofnunina og lítur hún á heimsendingarnar fyrst og fremst sem aukna þjónustu.
„Það er aldrei afhending samdægurs“ og vísar þar til takmörkunar á aðgengi.
Hún telur ruglings gæta í hlutverki ÁTVR í takmörkun á aðgengi að áfengi.
„ÁTVR hefur það hlutverk að takmarka aðgengi að áfengi. Í því felst að enginn fái afhent áfengi sem er yngri en 20 ára. Tilgangurinn er að draga úr líkum á því að ungt fólk neyti áfengis og skaðlegum áhrifum áfengisneyslu. Við teljum að við séum ekki að fara út fyrir það hlutverk með því að bjóða upp á heimsendingar. Bæði erum við að sinna því að þeir sem ekki hafa aldur til kaupi áfengi en jafnframt er töf á milli kaupa og afhendingar og þannig sinnum við ábyrgri sölu,“ segir Þorgerður.
Að lokum. Ef ný verslun ÁTVR opnar, t.a.m. í bæjarfélagi sem hefur ekki áfengisverslun. Felur það ekki í sér aukið aðgengi að áfengi?
„Jú vissulega felur það í sér aukið aðgengi þeirra sem búa í nálægð við þá vínbúð. En lykilatriðið er hvaða áhrif það hefur á heildarneyslu áfengis. Aðgengið er áfram takmarkað í lögunum með 20 ára aldurstakmörkunum og skilgreindum afgreiðslutíma. Það að hver sem er geti ekki keypt hvenær sem er, er takmörkun á aðgengi,“ segir Þorgerður.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗