Eins og að vera valin í landsliðið í fyrsta sinn

Guðný Árnadóttir er komin í landsliðið á nýjan leik.

Guðný Árnadóttir líkti tilfinningunni við að vera valin í landsliðið í fyrsta skipti þegar hún fékk kallið fyrir umspilsleikina gegn Portúgal um sæti á HM í fótbolta.

Guðný eignaðist sitt fyrsta barn í apríl og sneri aftur til keppni með Kristianstad í Svíþjóð í september. Hún fór að vonast eftir landsliðssæti þegar hún var farin að spila reglulega aftur.

„Ég var alltaf að vona það, sérstaklega eftir að ég byrjaði að spila alla leikina. Það er ekkert sjálfgefið að vera valin í landsliðið og hvað þá þegar maður er með fjölskylduna með sér,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið.

Dóttir hennar, Hildur Mjöll, verður með í verkefninu. Guðný sagði fjölskylduaðstæðurnar ekki hafa virst breyta neinu um landsliðsvalið.

„Það virðist samt ekki hafa skipt neinu máli, sem er bara geggjað.“

Hún hafði ekki verið að hugsa um landsliðið áður en hún hóf keppni á ný.

„Ég var ekkert að hugsa um þetta áður en ég byrjaði að spila en þetta varð aukabónus eftir að ég var komin af stað. Ég var mjög glöð þegar ég átti samtalið við Steina,“ sagði hún og átti við Þorstein Halldórsson landsliðsþjálfara.

„Mér líður svolítið eins og ég hafi verið valin í landsliðið í fyrsta skipti aftur. Þetta er nýtt og ég er sérstaklega spennt en á sama tíma veit ég hvernig þetta er.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab