Arsenal ekki tekið ákvörðun - Myndi kosta félagið
Arsenal getur kallað Ethan Nwaneri til baka úr láni frá Dortmund í janúar. Þýski miðillinn Bild greinir frá.
Nwaneri er 19 ára gamall og hefur ekki fengið jafn mikinn spiltíma í Þýskalandi og vonir stóðu til. Hann var einnig í láni hjá Marseille á seinni hluta síðustu leiktíðar þar sem honum gekk erfiðlega að festa sig í sessi.
Ákvæði í lánssamningi félaganna gerir Arsenal kleift að fá Nwaneri til baka í janúar. Dortmund þyrfti þá ekki að greiða fyrir lánið.
Arsenal hefur enn ekki tekið ákvörðun um framhaldið en Nwaneri snýr aftur á Emirates-völlinn í kvöld þegar Dortmund sækir Lundúnaliðið heim í Meistaradeildinni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗