Boða nýtt barnaverndarráð og aukið eftirlit
Markmið laganna er að tryggja börnum sem búa við óviðunandi aðstæður eða áskoranir sem ógna heilsu þeirra og þroska þann stuðning, umönnun og vernd sem þau þurfa á að halda. Ljósmynd/Colourbox
Ný heildarlög um barnavernd voru samþykkt á Alþingi í gærkvöld, að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Um er að ræða stærstu endurskoðun á löggjöf um barnavernd í meira en tuttugu ár, en í lögunum felast meðal annars skýrari skylduboð til aðila í barnavernd, lögfesting á ýmsum réttindum barna og stofnun nýs barnaverndarráðs.
Markmið laganna er að tryggja börnum sem búa við óviðunandi aðstæður eða áskoranir sem ógna heilsu þeirra og þroska þann stuðning, umönnun og vernd sem þau þurfa á að halda.
Nýtt barnaverndarráð fari með úrskurðarvald
Í lögunum felst að nýtt barnaverndarráð skipað sjö sérfræðingum, þar á meðal lögfræðingi, félagsráðgjafa og sálfræðingi, verður sett á fót á vegum ríkisins, og mun það fara með úrskurðarvald í barnaverndarmálum.
Á sama tíma verða umdæmisráð barnaverndar, sem hafa starfað á vegum sveitarfélaga, lögð niður, en markmið breytinganna er að auka samræmi í framkvæmd í barnavernd um allt land.
„Mikilvægt er að halda því til haga að frumvarpið breytir ekki grunnstoðum kerfisins: barnaverndarmál eru áfram á ábyrgð sveitarfélaga, með tilkynningum, könnun, áætlanagerð og dómstólaleið ef þarf,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
„En það sem er að breytast – og skiptir samfélagið máli – er að kerfið fær betri verkfæri, skýrari reglur og sterkari réttindaramma.“
Barnaverndarþjónusta er samkvæmt lögunum opinber þjónusta sem sveitarfélög bera ábyrgð á og geta tvö eða fleiri sveitarfélög rekið hana sameiginlega.
Aukið eftirlit með barnaverndarþjónustum
Með nýju lögunum er lagður grunnur að auknu eftirliti barnaverndarþjónustu sveitarfélaga með börnum í fóstri og skýrari ramma um heimsóknir og eftirfylgd.
Eftirlitsheimsóknum á fósturheimili verður fjölgað úr tveimur í fjórar á ári fyrstu tvö árin og úr einni heimsókn í tvær á ári eftir það. Jafnframt verða gerðar skýrari kröfur til þess hvernig heimsóknirnar fara fram með áherslu á réttindi fósturbarna.
Með lögunum eiga réttindi barna jafnframt að fá stærri sess og ríkari kröfur verða gerðar til barnaverndaryfirvalda að tryggja réttindi barna við málsmeðferð.
Fleiri börn munu fá talsmenn í barnaverndarmálum en nú er og börn munu fá aukinn rétt til að halda talsmanni sínum á meðan þau eru vistuð utan heimilis. Þá þurfi barnaverndaryfirvöld jafnframt að taka ákveðin skref til að stuðla að þátttöku barna í meðferð mála sinna, meðal annars með því að veita þeim upplýsingar á barnvænu máli.
Lögfesta skyldu til að veita fósturbörnum heilbrigðisþjónustu
Í fyrsta sinn er mælt fyrir um það í löggjöf um barnavernd að börn sem eru vistuð á vegum barnaverndaryfirvalda skuli hafa aðgang að nauðsynlegri og viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
Þar er stefnt að betri samfellu og skýrari verkaskiptingu milli barnaverndar og heilbrigðiskerfis svo börn missi ekki af nauðsynlegri þjónustu þegar þau flytjast milli úrræða eða búa utan heimilis. Í tengslum við þetta eru einnig lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu til að tryggja aðgang og reglubundnar heilbrigðisskoðanir.
Þá er í lögunum tekið á athugasemdum umboðsmanns Alþingis um lagaumgjörð þvingana í barnaverndarúrræðum með það að markmiði að hafa skýrar heimildir, skýrar reglur og skýr mörk svo réttaröryggi barna sé tryggt þegar gripið er til íþyngjandi ráðstafana.
Skýrara lagaumhverfi barna með fjölþættan vanda
Þá eru í lögunum skýrar reglur um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í úrræði á vegum ríkisins. Þetta er í samræmi við samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Meðal annars er fjallað um aðkomu barnaverndarráðs að ákvörðun um vistun og réttindi barna á meðan á vistun stendur.
Markmiðið er að börn með flóknar og samsettar þarfir falli ekki milli þjónustukerfa heldur sé ábyrgð skýr og þjónustan samhæfð.
Í lögunum er einnig tekið á athugasemdum umboðsmanns Alþingis um lagaumgjörð þvingana í barnaverndarúrræðum. Markmiðið er að hafa skýra heimild, skýrar reglur og skýr mörk – svo réttaröryggi barnsins sé tryggt þegar gripið er til íþyngjandi ráðstafana.
Að auki er fjallað um viðbrögð við neyðarástandi þegar kemur að vinnslu barnaverndarmála – með skýrari ramma um það hvernig kerfið bregst við þegar aðstæður eru óvenjulegar eða brýnar.
Með lögunum, sem taka gildi 1. apríl 2027, falla eldri barnaverndarlög nr. 80/2002 úr gildi.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗