Í langt bann fyrir reiðikast
Duncan Ferguson, knattspyrnustjóri norðurírska félagsins Glentoran og fyrrverandi framherji Everton, hefur beðist afsökunar eftir að hafa verið úrskurðaður í sjö leikja bann frá hliðarlínunni.
Ferguson veittist reiður að dómurunum í 3:2-tapinu gegn Cliftonville á föstudag, þar sem hann taldi að brot hefði farið fram hjá þeim í aðdraganda fyrsta marks andstæðinganna.
Mótmæli hans héldu áfram jafnvel eftir að Glentoran jafnaði og dómarinn Ben McMaster rak hann af velli áður en leikur hófst að nýju.
„Ég gekk of langt í því hvernig ég lét þennan pirring í ljós gagnvart dómurunum og ég hefði átt að taka betur á aðstæðunum,“ sagði Ferguson í yfirlýsingu frá félaginu.
Hann mun missa af þeim leikjum sem Glentoran á eftir á þessu ári, þar á meðal nágrannaslagnum gegn Linfield annan í jólum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗