Fluttur á bráðamóttöku eftir slys á hlaupahjóli
Ekki er vitað hve alvarleg meiðsl mannsins, sem fluttur var á bráðamóttöku með sjúkrabíl, eru. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ökumaður rafmagnshlaupahjóls var fluttur á bráðamóttöku með sjúkrabifreið eftir að hann varð fyrir bíl.
Tilkynnt var um umferðarslysið, sem átti sér stað í póstnúmeri 104 sem nær yfir Háaleitis- og Bústaðahverfi auk Laugardals, í dag eftir að ekið var á manninn. Ekki er vitað hve alvarleg meiðsl hans eru.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Sektaður um 40.000 krónur
Lögreglan átti í nógu að snúast í Hafnarfirði, þar sem tilkynnt var um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í póstnúmeri 221, sem nær yfir Ásland, Setberg og Velli.
Ekki er vitað hver stendur að baki innbrotinu, að því er fram kemur í dagbókinni.
Í sama póstnúmeri var tilkynnt um eignarspjöll þar sem maður hafði sparkað í hurð á bifreið. Ekki er vitað hve alvarlegt tjón hlaust af athæfinu en lögregla ritaði skýrslu um málið.
Þá var ökumaður í Breiðholti sektaður fyrir að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar, en lög kveða á um 40.000 króna sekt við slíkum umferðarbrotum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗