De Bruyne stendur með City þrátt fyrir dóminn: „Þetta er mitt félag“
Kevin De Bruyne, fyrrverandi miðjumaður Manchester City, segir að tilfinningar hans til félagsins muni aldrei breytast þrátt fyrir að City hafi verið fundið sekt um brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Belginn, sem leikur nú með Napoli, mætir sínum gömlu félögum á Etihad í Meistaradeildinni í kvöld.
De Bruyne vann sex Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina á tíu árum hjá City en nú hafa komið fram kröfur um að félagið verði svipt titlum vegna brotanna.
„Allir hafa sína skoðun og sumum gæti fundist þetta til skammar. En tilfinningar mínar hafa ekkert breyst,“ sagði De Bruyne.
„Ég er stoltur af því sem ég afrekaði sem leikmaður og þetta er mitt félag.“
De Bruyne segist enn bera mikla hlýju til eigenda City og hefur haldið sambandi við stjórnarformanninn Khaldoon Al Mubarak.
„Ég elska eigendurna. Ég ber ekkert nema hlýhug til félagsins og það mun aldrei breytast.“
Manchester City hefur áfrýjað niðurstöðunni og bíður enn endanlegrar niðurstöðu um mögulegar refsingar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗