Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“

Halldór Karl Halldórsson, lögmaður, er undrandi á að Guðmundi Ólasyni, fyrrverandi forstjóra, fái ekki réttlæti eins og aðrir í Milestone málinu, þrátt fyrir að málsmeðferðin hafi verið úrskurðuð ólögmæt.

„Íslenska ríkið hefur viðurkennt að dómurinn yfir Guðmundi Ólasyni var kveðinn upp eftir ólögmæta málsmeðferð. Samt neitar það honum um það réttlæti sem það veitti öðrum í málinu,“ segir Halldór í aðsendri grein á Vísi.

Halldór er ekki lögmaður Guðmundar, heldur vinur hans. Skrifaði hann greinina eftir að hafa heyrt reynslusögu hans af íslensku dómskerfi.

„Það er óhætt að segja að hún hafi komið mér í opna skjöldu og gert mig raunar það forviða að ég hef síðan reynt eftir fremsta megni, sem vinur, að aðstoða Guðmund við að ná fram augljósu réttlæti og rétta af stöðu sem hefur þegar kostað hann fjármuni, atvinnutækifæri og það sem er nú líklega mikilvægast: frelsi og hugarró,“ segir Halldór.

Sama háttsemi

Milestone málið er eitt umfangsmesta efnahagsbrotamálið í kjölfar bankahrunsins. Laut það að kaupum Karls og Steingríms Wernerssona á hlut systur sinnar Ingunnar í félaginu á kostnað þess sjálfs.

Guðmundur var á meðal þeirra sem voru ákærðir í málinu. Þeir voru sýknaðir og svo sakfelldir fyrir sömu háttsemi í sama dómi. Ólíkt öðrum hafði Guðmundur ekki tök á því að skjóta málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu sem viðurkenndi brot á mannréttindum sakborningana. Var málið í kjölfarið endurupptekið og þeir sýknaðir.

Guðmundur bað um sömu meðferð en var synjað á þeim grundvelli að ríkið hefði ekki viðurkennt brot gagnvart honum. 

Guðmundur fékk ekki sömu meðferð og þremenningarnir.

„Einhver kann að velta því fyrir sér hvernig standi á þessu en hér að neðan er reynt að varpa frekari ljósi á þessa óréttlátu og stórfurðulegu réttarstöðu Guðmundar,“ segir Halldór og bendir á að ferill Guðmundar hafi verið flekklaus fyrir þetta mál og hafi verð það síðan. Mál Guðmundar hafi byggt á gögnum sem sérstakur saksóknari hafi staðfest að hefðu borist skiptastjóra með ólögmætum hætti.

Tengdamóðir og börn tóku á móti lögreglu

Rannsóknin sem leiddi til ákærunnar hafi hafist á allt öðrum vettvangi. Það er eftir að sérstakur saksóknari gerði húsleit í júlí árið 2009 vegna rannsóknar á málefnum Sjóvár.

„Lögreglan kom inn á heimili Guðmundar, þar sem tengdamóðir hans og börn tóku á móti henni. Símar hans voru hleraðir. Í skýrslutöku var honum m.a. gert að hlusta á einkasamtöl fólks sem ekki voru sakborningar,“ segir Halldór.

Sjá einnig:

12 milljarða gjaldþrot Guðmundar Ólasonar

Sérstakur saksóknari hafi rannsakað gögnin en ekkert athugavert fundið. Mál Guðmundar hafi svo seinna sprottið af kæru skiptastjóra þrotabús Milestone. Fyrir liggi að kæran hafi byggt á skýrslu einkafyrirtækis sem tveir fyrrverandi rannsakendur sérstaks saksóknara ráku. Starfsmennirnir hafi verið kærðir vegna meðferðar gagna en ríkissaksóknari fellt kæruna niður.

Kveikur og Kastljós fjölluðu um gögn úr rannsókninni sem höfðu komist í umferð. Ríflega helmingur þeirra tengdist upptakanna hjá Milestone og Sjóvá. Gögn sem virðast hafa borist frá skrifstofu sérstaks saksóknara til skiptastjóra Milestone sem síðan hafi kært til sérstaks saksóknara.

„Þessi gögn urðu svo grundvöllur Milestone-málsins. Það skýtur skökku við að gögn sem aflað var með þessum hætti verði grundvöllur sakfellingar í refsimáli. Þá hafa gögnin ekki verið afhent þeim sem þau varða. Ég veit heldur ekki til þess að ákæruvaldið hafi upplýst opinberlega hvort eða hvernig það hafi brugðist við þessum stórfellda gagnaleka,“ segir Halldór.

Fangelsi og gjaldþrot

Reifar hann einnig Milestone málið sjálft þar sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafi sýknað alla ákærðu eftir að hafa hlýtt á 22 manns í 5 daga. Árið 2016 hafi Hæstiréttur hins vegar snúið dóminum við án þess að hafa tekið skýrslu af einum einasta sakborningi eða vitni. Guðmundur hafi hlotið þriggja ára fangelsisdóm og afplánað hann. Auk þess var honum gert að greiða 5,2 milljarða króna og í kjölfarið gerður gjaldþrota.

„Fjórum árum eftir niðurstöðu Hæstaréttar Íslands lýsti íslenska ríkið því yfir fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, með sátt, að brotið hefði verið gegn rétti þriggja sakborninga til réttlátrar málsmeðferðar í Milestone-málinu. Brotið fólst í því að Hæstiréttur sneri sýknu í sakfellingu án þess að hlýða á framburð, og sá annmarki átti við í einu og sama málinu gagnvart öllum sakborningunum,“ segir Halldór. „Guðmundur hafði ekki kært, enda gekk hann út frá því að sami dómur yrði metinn eins gagnvart öllum sem hlutu hann fyrir samverknað. Þá var fjárhagsleg staða hans slík að hann hafði í reynd ekki tök á því, enda hafði hann verið tekinn til gjaldþrotaskipta á grundvelli þessa sama dóms, þ.e. dóms sem ríkið viðurkenndi svo fjórum árum síðar að hefði verið kveðinn upp í andstöðu við mannréttindi sakborninga.“

Endurupptökudómur hafi í kjölfarið á viðurkenningu íslenska ríkisins á mannréttindabroti samþykkt endurupptöku árið 2021. Sýkna þremenninganna stendur og ríkissjóður greiði allan kostnað.

Jafnræði

Guðmundur óskaði eftir endurupptöku en þá tók ríkissaksóknari óvænt aðra afstöðu og endurupptökudómur taldi skilyrði hans til endurupptöku ekki uppfyllt. Það eina sem hann fékk var að greiða 1,5 milljónir króna í málskostnað.

„Ég leyfi mér að trúa því að glöggur lesandi sjái að ríkið getur ekki viðurkennt brot gegn mannréttindum þriggja einstaklinga í tilteknu máli, sem leiddi til þess að mál þeirra voru endurupptekin og þeir sýknaðir, en neitað svo að veita öðrum einstaklingi í sama máli sömu viðurkenningu,“ segir Halldór og telur þetta brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar sem og mannréttindasáttmála Evrópu. „Þessi mismunandi meðferð er sérstaklega ámælisverð þegar haft er í huga að málið snýst um æru, mannorð og réttlæti einstaklings sem hefur þegar afplánað fangelsisvist vegna málsins.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab