Vísindamenn staðfesta að karlaflensan sé raunveruleg - Ástæða þess að karlar þjást meira en konur í veikindum
Mörg pör kannast við það að þegar konan veikist þarf hún samt sem áður oft að standa sína plikt í heimilishaldinu, á meðan karlmaðurinn er nær dauða en lífi þegar hann fær smá flensu og getur varla lyft litla putta. Smá ýkjur kannski, en samt……
Nú geta karlmenn hins vegar tekið kæti sína og veifað nýrri rannsókn en samkvæmt henni gegnir líffræðilegt kyn í raun „verulegu hlutverki“ í því hvernig líkaminn bregst við tilteknum sjúkdómum og hversu alvarlega við finnum fyrir veikindunum.
Vísindamenn komust til dæmis að því að karlkyns mýs urðu verr úti þegar þær smituðust af veirusjúkdómum, svo sem inflúensu, COVID-19 og Vestur-Nílarveiru. Sama rannsókn leiddi í ljós að karlkyns mýs voru mun líklegri til að fá alvarlega taugakvilla, þar á meðal máttleysi og lömun.
Rannsóknarteymið, sem birti niðurstöður sínar í tímaritinu Journal of Infectious Diseases, taldi í upphafi að karlkyns mýsnar í rannsókninni hefðu mögulega orðið fyrir meira magni veirunnar, sem hefði gert ónæmiskerfi þeirra erfiðara fyrir að uppræta sýkinguna, en svo reyndist ekki vera.
„Bæði karl- og kvendýrin voru sýkt við nákvæmlega sömu aðstæður; þau voru nánast erfðafræðilega eins, á nákvæmlega sama aldri og fengu sömu veiruna úr sama íláti og í jöfnu magni,“ sagði Ali Ashkar prófessor við McMaster-háskóla, sem stýrði rannsókninni. „Það var óskiljanlegt að svo mikill munur væri á því hvernig sjúkdómurinn kom fram.“
Mynd: Getty.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að það hvernig þessir sjúkdómar hafa áhrif á líkamann ráðist að miklu leyti af líffræðilegu kyni.
„Það er að verða sífellt viðurkennt á þessu sviði að afleiðingar bráðra veirusýkinga eru yfirleitt mismunandi milli karla og kvenna,“ hélt Ashkar áfram. „Ónæmiskerfi karla virðist bregðast sterkar við þessum sýkingum og þar af leiðandi er skaðinn eða bólgan á sýkingarstaðnum oft alvarlegri.“
„Héðan í frá er mikilvægt fyrir lækna að stjórna bólgu snemma hjá karlkyns sjúklingum, ef um bráða veirusýkingu er að ræða. Við höfum nú þegar mikið af samþykktum og áhrifaríkum bólgueyðandi lyfjum, þannig að við þurfum ekki endilega nýjar íhlutunaraðferðir til að gera þetta. Við þurfum bara að viðurkenna að karlkyns sjúklingar geta verið viðkvæmari fyrir alvarlegum sjúkdómum og sníða meðferðaráætlanir okkar í samræmi við það.“
Karlaflensan var tekin fyrir í bresku sketsaþáttunum Man Stroke Woman:
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗