Mun færri komast að en vilja í Laugardalnum
Ljóst er að mun færri komast að en vilja á úrslitaleik Íslands og Portúgal á Laugardalsvelli um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar.
KSÍ greindi frá þessu í dag. Frítt er á leikinn í boði bakhjarla sambandsins en sækja þurfti um miða á leikinn. Landinn tók vel í það og margir sóttu um. Það verður því dregið um það hverjir fá að mæta á völlinn.
Leikurinn fer fram 5. desember. Er það seinni leikurinn í einvígi liðanna í úrslitaleik umspilsins. Fyrri leikurinn fer fram ytra fjórum dögum fyrr, en Stelpurnar okkar hafa aldrei áður komist á lokakeppni HM.
Tilkynning KSÍ:
Viðtökurnar við miðaskráningu fyrir leik Íslands og Portúgals hafa verið frábærar og ljóst er að áhuginn á leiknum er langt umfram sætaframboð á Laugardalsvelli.
KSÍ vill þakka kærlega fyrir þennan mikla áhuga og þann stuðning sem íslenska landsliðið finnur fyrir fyrir þennan mikilvæga leik.
Vegna mikillar eftirspurnar er jafnframt ljóst að ekki verður hægt að verða við öllum miðabeiðnum.
Við úthlutun þarf KSÍ að tryggja miða til ákveðinna hópa, meðal annars aðildarfélaga, bakhjarla KSÍ, leikmanna Íslands og gestaliðsins. Að því loknu verður dregið úr hópi þeirra sem hafa óskað eftir miðum.
Fyrsta úthlutun hefst í dag og þeir sem fá miða fá ákveðinn tíma til að sækja þá. Ósóttir miðar verða síðan boðnir öðrum, þannig að áfram getur skapast tækifæri fyrir þá sem fá ekki miða í fyrstu umferð.
Markmiðið er einfalt: að allir þeir miðar sem fara út skili sér í fólki á Laugardalsvelli þegar Ísland mætir Portúgal.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗