Þrjú stig dregin af Crystal Palace

Crystal Palace fékk stigafrádrátt.

Crystal Palace fékk stigafrádrátt. Ljósmynd/Crystal Palace

Þrjú stig hafa verið dregin af Crystal Palace í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu fyrir að hafa nýtt fjóra skiptiglugga í 1:0-sigri liðsins á Everton 6. september.

Palace viðurkenndi að hafa gert skiptingu á sjöundu mínútu uppbótartímans eftir að hafa þegar nýtt þá þrjá skiptiglugga sem leyfðir eru.

Við stigafrádráttinn fellur liðið niður í 13. sæti, sem er fallumspilssæti.

Palace mótmælti refsingunni og sagði hana ekki sanngjarna. Félagið lagði áherslu á að varamaðurinn hefði aðeins verið inni á vellinum í 46 sekúndur á meðan boltinn var í leik og aldrei snert hann.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab