Bláa Lónið gengur frá kaupum á Arctic Adventures
Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, Sigríður M. Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, og Grímur Sæmundsen, stjórnarformaður Bláa lónsins, gengu frá kaupunum í dag. Ljósmynd/Aðsend
Bláa lónið hf. hefur lokið kaupum á öllu hlutafé ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures hf. og hafa greiðsla og afhending farið fram. Þar með er Arctic Adventures loks orðið hluti af samstæðu Bláa lónsins.
Gagngjald fyrir allt hlutafé í Arctic Adventures hf. eru 246.443.576 nýir hlutir í Bláa lóninu hf., sem verða teknir til viðskipta á fimmtudaginn 25. nóvember, að því er fram kemur í tilkynningu þar sem ráðahagurinn er sagður styrkja stöðu Bláa lónsins enn frekar.
Kaupunum er ætlað að styrkja grunnsamstæðuna til áframhaldandi vaxtar og uppbyggingar í íslenskri ferðaþjónustu, með tækifærum til samlegðar og fjölbreyttara þjónustuframboði.
Bæði starfrækja félögin áfangastaði á sviði upplifunar, vellíðunar og gistiþjónustu víða um land, og í tilkynningu segir enn fremur að kaupin styðji við stefnu Bláa lónsins um að leiða uppbyggingu í ferðaþjónustu sem staðsetji Ísland sem einn fremsta upplifunar- og vellíðunaráfangastað heims.
Áætlar að tekjur aukist um rúmlega helming
Meðal þekktra áfangastaða á vegum Arctic Adventures eru Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshellir, en fyrirtækið byggir á áratuga reynslu og býður fjölbreytt úrval dagsferða og lengri ferða um land allt, þar á meðal jöklaferðir, hellaferðir, norðurljósaferðir og gönguferðir.
Bláa lónið áætlar að tekjur samstæðunnar á árinu 2027 muni aukast um 99 milljónir evra, eða úr 192 milljónum í 291 milljón – um rúmlega helming.
Sömuleiðis gerir félagið ráð fyrir að EBITDA aukist um tæplega helming, eða 47 prósent, á næsta ári að teknu tilliti til samlegðar, en ráðgert er að helmingur af áætlaðri árlegri kostnaðarsamlegð upp á fimm milljónir evra komi til á næsta ári.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗