Sjö handtökur eftir leikinn á Anfield

Stuðningsmenn á Anfield.

Stuðningsmenn á Anfield. AFP/Paul Ellis

Sjö manns voru handteknir á 4:0-sigurleik Liverpool gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Anfield á sunnudag.

Tveir karlmenn, 63 og 57 ára, voru handteknir grunaðir um að hafa sungið níðsöngva um harmleiki.

Tveir aðrir voru teknir höndum vegna gruns um ósæmilega söngva og kynþáttaníð, einn vegna gruns um vörslu fíkniefna og tveir í kjölfar tilkynninga um slagsmál meðal stuðningsmanna gestaliðsins.

„Þeir sem syngja um harmleiki valda þeim fjölskyldum og einstaklingum sem eiga beinan hlut að máli gríðarlegri vanlíðan,“ sagði Col Rooney, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Merseyside, í yfirlýsingu.

„Sorglegur missir mannslífa er ekki efni til að slá sér upp í rígnum á milli liða og slík hegðun á alls ekki heima í knattspyrnu, óháð því hvaða liði menn fylgja.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab