Máli öryrkjans sem missti húsið frestað

Aðalmeðferð fer fram á nýju ári.

Aðalmeðferð fer fram á nýju ári. mbl.is/Karítas

Aðalmeðferð í máli Jakubs Polkowski gegn íslenska ríkinu, Reykjanesbæ og fyrirtækinu Sæstjörnunni ehf. hefur verið frestað fram í miðjan janúar. 

Þetta staðfestir Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður Jakubs í samtali við mbl.is.

Jakub er fatlaður og missti hús sitt á nauðungaruppboði fyrir 3 milljónir króna. Húsið var skömmu síðar selt á 78 milljónir króna af kaupandanum, Sæstjörnunni ehf.

Beðið eftir matsgerð um verðmæti húsnæðisins

Daníel segir frestunina til komna vegna þess að ákveðið var að fá matsgerð um verðmæti á húsnæðinu sem um ræðir.

Krafa Jakubs gegn ríkinu og Reykjanesbæ snýr að því að hagsmuna hans hafi ekki verið gætt í málinu, en krafan gegn Sæstjörnunni snýr að því að fyrirtækið hafi notið aðstöðumunar og hagnast á vanþekkingu hans.

Athygli vakti að Jakubi var meinað að höfða málið nema gegn framlagningu málskostnaðartryggingar upp á 1,1 milljón króna og lagði Öryrkjabandalagið fram trygginguna fyrir hönd Jakubs.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab