Ákærður fyrir nauðganir og samskipti við barn
Isiah Noel-Williams, 23 ára knattspyrnumaður hjá enska D-deildarliðinu Barnet, hefur verið ákærður fyrir þrjár nauðganir og úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Lögreglan í Hertfordshire staðfesti ákærur fyrir kynferðisbrot, kynferðisleg samskipti við barn og sölu á fíkniefnum í B-flokki.
Hann kom fyrir dóm í Hatfield 21. nóvember og á að mæta fyrir krúnudómstólinn í St. Albans 22. desember.
Barnet sagði að félagið ynni að fullu með yfirvöldum og myndi ekki tjá sig frekar á meðan málið væri til meðferðar fyrir dómstólum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗