Segir söluáform um Ljósleiðarann illa tímasett
Dagbjört sagði á Alþingi í dag að netárásin á vefhýsingarfyrirtækið 1984 hefði minnt á hve háð samfélagið væri stafrænum innviðum. Ljósmynd/Colourbox
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir áform borgarstjórnarmeirihlutans í Reykjavík um að undirbúa sölu á Ljósleiðaranum illa tímasett.
Hún sagði á Alþingi í dag að netárásin á vefhýsingarfyrirtækið 1984 hefði minnt á hve háð samfélagið væri stafrænum innviðum.
„Við eigum ekkert erindi með það að flytja þessa lykilinnviði í hendur einkaaðila eins og sakir standa,“ sagði Dagbjört undir liðnum störf þingsins.
Hún sagði Reykvíkinga eiga hagsmuna að gæta af því hvernig staðið væri að fjárfestingum, viðhaldi og uppbyggingu hjá Ljósleiðaranum.
Umboðið háð staðfestingu eigenda
Ljósleiðarinn er að fullu í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Reykjavíkurborg er langstærsti eigandi Orkuveitunnar en Akraneskaupstaður og Borgarbyggð eiga einnig hlut í henni. Í samstarfssáttmála meirihlutans í Reykjavík er gert ráð fyrir undirbúningi að sölu Ljósleiðarans.
Hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti 26. október að veita umboð til aðgerða sem gætu leitt til breytinga á eignarhaldi, með fyrirvara um staðfestingu eigenda Orkuveitunnar.
Meðal þeirra kosta sem félagið hefur nefnt eru áframhaldandi eignarhald Orkuveitunnar, sala að hluta eða í heild og skráning á markað. Sveitarstjórn Borgarbyggðar frestaði afgreiðslu erindisins á fundi sínum 12. nóvember.
Dagbjört sagði þetta gefa tilefni til að ræða hvaða stafrænu innviðir teldust til lykilinnviða, hverjir réðu yfir þeim og undir hvaða lögsögu gögn féllu þegar þau væru vistuð erlendis. mbl.is/Karítas
Spyr hver ráði yfir stafrænum innviðum
Vefhýsingarfyrirtækið 1984 stöðvaði alla þjónustu sína tímabundið á föstudag í kjölfar umfangsmikillar netárásar.
Dagbjört sagði enn óljóst hver hefði staðið að árásinni og hversu mikið tjónið væri. Hún sagði viðskiptavini fyrirtækisins eiga á hættu að missa gögn til frambúðar og benti á að sambærileg árás á lykilinnviði gæti raskað opinberri þjónustu verulega.
Dagbjört sagði þetta gefa tilefni til að ræða hvaða stafrænu innviðir teldust til lykilinnviða, hverjir réðu yfir þeim og undir hvaða lögsögu gögn féllu þegar þau væru vistuð erlendis. Hún spurði hvaða úrræði væru fyrir hendi ef erlend skýjaþjónusta brygðist eða tengingar rofnuðu.
Hún vísaði til sameiginlegrar yfirlýsingar ráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna um stafrænt fullveldi, sem samþykkt var í Kaupmannahöfn 6. nóvember. Þar er meðal annars horft til aukins samstarfs um skýjaþjónustu og öryggi sæstrengja. Dagbjört vísaði einnig til stefnu um samfélagsöryggi sem Norðurlandaráð samþykkti í Helsinki 28. október og fjallar meðal annars um stafrænt fullveldi.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
