Ertu að skera alls konar úr mataræðinu? - Ragnhildur ráðleggur þetta í staðinn

Ragna Gestsdóttir

Ragna Gestsdóttir

Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 16:30

Ragga Nagli. Mynd: DV/Hanna.

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta fjallar Ragga um daglegt mataræði og hvernig margir eru að sleppa alls konar matvöru til að borða hollt. 

Segir hún alltof marga sjá að eina leiðin til að borða hollt sé að skera alls konar út úr mataræðinu. 

„Sleppa hveiti, sykri, smjöri. Forðast kolvetni eins og hnerrandi mann. Brauð verður Satans, mjólk úr belju víkur fyrir mjólk úr plöntu. Allt þetta veldur skorthugsun sem á einhverjum tímapunkti leiðir til að FOKKITT mætir í öllu sínu veldi og áður en þú veist af liggur kexpakkinn örendur á gólfinu. Níhilismi í mataræðinu veldur að sama skapi svengd og næringarskorti sem knýr okkur áfram í áttina að nammiskápnum til að fá skjóta orku.“ 

Ragnhildur spyr hvort ekki sé tilefni til að prófa nýja nálgun, í stað þess að sleppa alls konar að bæta frekar við góðum valkostum og ýta þannig ósjálfrátt út því sem þú vilt gera minna af.

„Því það er hreinlega ekki pláss fyrir ropvatn og kruðerí þegar við erum vel nærð af prótíni, hæglosandi kolvetnum, trefjum og góðri fitu og þú steingleymir skyndilega skápaskröltinu á kvöldin.“ 

„Þegar við borðum nóg af kolvetnum er blóðsykurinn jafn og minni löngun í sykur og sætmeti. Bættu við grófu korni, haframjöli, kartöflum, rótargrænmeti og hrísgrjónum í máltíðirnar.

Þegar við byrjum daginn á 25-30 g af prótíni keyrum við sedduna uppúr öllu valdi og setur tóninn fyrir daginn. Prófaðu að dúndra inn NOW Foods Iceland prótíndufti í hafragrautinn, skyri í múslíið eða skrambla egg á pönnu á gróft brauð.

Láttu símann minna þig á að hunskast fyrr í bælið. Þegar við fáum 7-9 tíma svefn eru svengdar og sedduhormónin hamingjusöm og í jafnvægi. Svefn heldur jafnvægi á blóðsykri, og dregur úr pervertískum löngunum í súkkulaði, snakk og kex og skjóta orku úr pakka, plasti eða álpappír. Stuttur svefn stuðlar að lægra magni af sedduhormóninu Leptín yfir daginn svo þeir verða ekki almennilega saddir óháð því hvað þeir borða mikið.

Ef þú lyftir lóðum eykst sjálfstraustið uppúr öllu valdi, vöðvamassinn eykst og grunnbrennslan dúndrast upp og blóðsykurinn jafnari.

Meiri trefjar þýðir meiri mettun og minna pláss fyrir Dórítós. Skutlaðu Psyllium husk sem er Ozempic náttúrunnar, út í hafragrautinn og auktu líka við grófa kornið.

Ef þú ferð út að labba þá eyðirðu minni tíma fyrir framan imbann. Farðu í göngutúr eftir kvöldmat, þá sefurðu líka betur.

Ef þú hittir vinina og hlærð dátt þá losarðu serótónín og oxýtócin sem stuðlar að meiri vellíðan og hamingju. Reyndu að gera eitthvað félagstengt 2-3x í viku.“ 

Mynd: Ragga nagli.

Ragnhildur segir það að nálgast mat valdeflandi.

„Að auka við flóruna innrætir gróskuhugsun. Að hafa stóra palettu af valkostum veitir þér valfrelsi og hugarró. Að bæta við frekar en að draga frá gerir heilsulífið að dansi á rósum með hamingjusömum börnum í Múmíndal.“ 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab