Missti barn og var synjað um greiðslur í sorgarleyfi

Þegar nefndin gaf konunni kost á að skýra dráttinn sagði hún að hún hefði verið andlega og líkamlega óvinnufær eftir skyndilegt andlát barnsins. Ljósmynd/Colourbox

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur vísað frá kæru konu sem var synjað um greiðslur í sorgarleyfi eftir að hún missti barn sitt. Kæran barst 22 dögum eftir að kærufrestur rann út. Úrskurðurinn féll 27. ágúst. 

Konan sagði að áfallið hefði gert henni ókleift að sinna erindum sínum við stjórnvöld. Nefndin taldi skýringar hennar ekki nægja til að afsaka dráttinn.

Vinnumálastofnun synjaði umsókn konunnar 1. apríl á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði laga um sorgarleyfi um þátttöku á innlendum vinnumarkaði.

Í ákvörðuninni var henni leiðbeint um kærurétt og þriggja mánaða kærufrest. Fresturinn rann út 1. júlí og kæran barst nefndinni 23. júlí.

Sagðist ófær um að sinna erindum sínum

Þegar nefndin gaf konunni kost á að skýra dráttinn sagði hún að hún hefði verið andlega og líkamlega óvinnufær eftir skyndilegt andlát barnsins.

Móðir hennar hefði þurft að annast umsóknina og leita skýringa hjá Vinnumálastofnun fyrir hennar hönd á sama tíma og hún syrgði sjálf og studdi við dóttur sína. Í svarinu kom fram að leggja mætti fram læknisvottorð ef nefndin óskaði eftir því.

Konan sagði að hún hefði flutt heim eftir námsdvöl erlendis og undirritað ráðningarsamning í ágúst 2025 um starf sem átti að hefjast í október. Hún hefði hugst vinna tímabundið fram að því en að hennar sögn féll atvinnurekandinn frá ráðningunni og réð starfsmann sem gat unnið lengur.

Hún taldi að ráðningarsamningurinn og tilraun hennar til að hefja störf fyrr sýndu virk tengsl við íslenskan vinnumarkað. Hún sagði synjunina hafa skilið fjölskylduna eftir tekjulausa í kjölfar barnsmissisins.

Taldi hvorugt skilyrðið uppfyllt

Samkvæmt stjórnsýslulögum ber að vísa kæru frá þegar hún berst eftir að kærufrestur rennur út, nema drátturinn teljist afsakanlegur eða veigamiklar ástæður mæli með því að taka kæruna til meðferðar. Nefndinni bar að meta hvort annað þessara skilyrða væri uppfyllt.

Í úrskurði sínum 27. ágúst komst nefndin að þeirri niðurstöðu að skýringar konunnar réttlættu ekki dráttinn.

Nefndin taldi heldur ekki veigamiklar ástæður til að taka kæruna til efnislegrar meðferðar, þar sem hún sá engan annmarka á ákvörðun Vinnumálastofnunar sem gæti leitt til ógildingar hennar.

Kærunni var því vísað frá og synjun stofnunarinnar stóð í gildi.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab