Vill að Danmörk verði áfram dönsk og kristin

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. AFP

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og leiðtogi danskra jafnaðarmanna, segist andvíg fjölmenningarsamfélagi þar sem ólíkir menningarheimar eru settir á sama stall. Hún vill að Danmörk verði áfram kristið land og varar við þeim öflum sem grafa undan lýðræðinu innan frá.

Ummæli hennar í viðtali við dagblaðið BT fyrir viku hafa vakið athygli innan Danmerkur sem utan.

Í dag greinir Euronews frá vaxandi óánægju í röðum evrópskra jafnaðarmanna vegna afstöðu hennar til innflytjendamála og til stendur að ræða hana sérstaklega innan þingflokks jafnaðarmanna á Evrópuþinginu.

Ógnin innan frá

Í viðtalinu var Frederiksen spurð út í fyrri ummæli sín um að óvinur væri að vaxa innan dansks samfélags og hverja hún ætti þar við.

„Þarna eru stuðningsmenn Hamas. Þarna er fólk sem styður lög sem setja Kóraninn ofar lýðræði okkar,“ sagði Frederiksen.

Hún sagði Dani á sínum tíma hafa gengið út frá því að fólk sem flyttist til landsins frá múslímskum ríkjum kynni að meta þau lýðræðislegu réttindi, velferð og öryggi sem þar byðust.

Ósamrýmanleg viðhorf

Sú hefði þó ekki alltaf orðið raunin.

Of margir þeirra sem komið hefðu til Danmerkur væru andvígir jafnrétti kynjanna, hefðu andúð á samkynhneigðum og teldu beitingu ofbeldis réttmæta, meðal annars í samskiptum við konur og við uppeldi barna.

Meðal þeirra sem komið hefðu til landsins væri fólk sem teldi að íslam ætti að standa ofar lýðræðinu.

Slík viðhorf væru að hennar mati ósamrýmanleg þeim grunni sem danskt samfélag hefði verið byggt á.

Trúfrelsi en ekki jafnræði trúarbragða

Frederiksen kvaðst ekki reiðubúin að gera málamiðlanir um þau gildi sem hún kenndi við Danmörku og Evrópu.

„Ég er ekki fylgjandi fjölmenningarsamfélagi þar sem menningarheimar eru settir á sama stall.“

Hún gerði jafnframt greinarmun á trúfrelsi annars vegar og jafnræði trúarbragða hins vegar.

„Við erum kristið land og ég vil að við verðum það áfram,“ sagði Frederiksen og bætti við að kristindómurinn hefði átt þátt í að móta það góða samfélag sem Danir byggju við.

Vill viðhalda danskri meirihlutamenningu

Forsætisráðherrann sagði enn fremur mikilvægt að dönsk menning yrði áfram ráðandi í landinu og kvaðst andvíg því að innflytjendur kæmu í stórum stíl í stað þeirra sem þar byggju fyrir.

Í því samhengi talaði hún um „en stor befolkningsudskiftning“, sem gagnrýnendur hennar hafa í kjölfarið haldið á lofti.

Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa orðaval Frederiksen er Pelle Dragsted, formaður danska vinstriflokksins Enhedslisten.

Heldur hann því fram að hugtakið tengist samsæriskenningu um að stjórnmálaelítan í Evrópu vinni markvisst að því að skipta út íbúum álfunnar.

Frederiksen hélt því þó ekki fram í viðtalinu að slíkt samsæri væri fyrir hendi.

Danska menningin verði að halda stöðu sinni

„Ég vil að Danmörk sé dönsk,“ sagði Frederiksen.

Spurð hvort hún ætti þar við Dani að uppruna sagði hún Dani vera upprunalegan þjóðernishóp í landinu. Samsetning þjóðarinnar breyttist vitaskuld með tilkomu innflytjenda en danska menningin yrði engu að síður að halda stöðu sinni sem menning meirihlutans.

Hún tók jafnframt fram að margir innflytjendur hefðu lagt sitt af mörkum til dansks samfélags.

Vill ekki vera bendluð við öfgamenn

Í færslu á Facebook hefur forsætisráðherrann nú vísað því á bug að skoðanir hennar eigi samleið með skoðunum samsæriskenningasmiða, hægriöfgamanna eða fasista.

Hún stendur hins vegar fast við þá afstöðu sína að í Danmörku þurfi að vera ríkjandi menning sem þeir sem flytjast til landsins geti aðlagast.

„Danmörk er ekki bara staður,“ skrifar Frederiksen og segir danskt samfélag byggt á skýrum gildum sem mótast hafi í aldanna rás og eigi einnig að gilda í framtíðinni.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab