Bruno horfir til Ítalíu og Spánar
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United og miðjumaður portúgalska landsliðsins í fótbolta, horfir til Spánar og Ítalíu en samningur hans við Manchester United rennur út í sumar.
„Mig langar að upplifa spænsku deildina og berjast um stóra titla á Ítalíu,“ sagði Fernandes við portúgölsku sjónvarpsstöðina Canal 11 í fyrra. „Ég hef sterk tengsl við Ítalíu. Dóttir mín fæddist þar.“
Fernandes lék með Novara, Udinese og Sampdoria á Ítalíu áður en hann gekk til liðs við Sporting.
Framtíð hans hjá United er enn óljós en hann hefur hingað til hafnað nýjum samningstilboðum enska félagsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗