Eru uppáhaldssmákökurnar þínar á listanum?
Þegar um 180 Íslendingar voru spurðir í októbermánuði síðastliðnum hver eftirlætissmákökutegundin þeirra væri, mátti líta afgerandi niðurstöður. Ljósmynd/Unsplash
Heimili landsins baka helst piparkökur, en okkur finnast þær alls ekki bestar. Meirihluti viðmælenda Morgunblaðsins segir aftur á móti að sörur séu bestu smákökurnar. Þó byrjuðum við ekki að baka þær að ráði fyrr en á 10. áratugnum
Í aldir hafa konur kynnt eldhús þessa lands fyrir jólin, velt og þjappað deigi milli handanna, lært gamlar og góðar uppskriftir, tileinkað sér nýjar og jafnvel reynt að slá hver aðra út með fjölda sorta. Vissulega eiga karlar líka þarna hlut að máli en sé horft yfir tímann þá eru þeir á stangli. Þegar bakstursofn fór að verða almenn eign fólks á fyrstu áratugum 20. aldar og bökunarvörur ódýrari og aðgengilegri í verslununum fór smákökugerð að blómgast. Í dag erum við enn að baka og borða vinsælustu tegundir fyrstu alvöru ára smákökubaksturs þótt nýrri tegundir hafi rutt sér til rúms og séu að yfirtaka dunkana.
Í bókinni Bökun í heimahúsum, frá 1930, birti Helga Sigurðardóttir á þriðja tug uppskrifta að smákökum sem bakaðar voru á þeim tíma. Þeirra á meðal voru gyðingakökur, spesíur, hálfmánar, sykurkökur, vanillukransar, smjörkransar, kanellengjur, kókostoppar, möndlukökur, piparkökur, sírópskökur og hafrakökur.
Það er erfitt að áætla hver hafi verið vinsælasta sortin. Gervigreindin segir spesíur og það skilar flestum niðurstöðum þegar leitað er í gagnagrunni dagblaða og tímarita. En þar getur blekkt að spesíur var líka notað um mynt á áratugum áður. En spesíur voru oft nefndar og njóta enn vinsælda.
Tveimur árum síðar kom Brauð og kökur út eftir bakarameistarann Karl O.J. Björnsson og þar voru allar þessar uppskriftir líka.
Sumar kökur í bókunum þeirra eru ef til vill bakaðar einhvers staðar en hafa þó ekki birst í uppskriftadálkum tímarita og blaða síðustu áratugi svo ef til vill eru einhverjar sortir horfnar. Enginn virðist hafa heyrt um frænkukökur, jóskar makkarónur og portúgalla.
Þessar komust líka á lista: negulkökur, bessastaðakökur, kúrenukökur, flórentínur, bóndakökur, blúndur, eggjahvítukökur, karamellukurlstoppar, smartískökur, stokkhólmskökur, siggakökur, sítrónukökur, döðlutoppar, draumadísir, hólar, múrsteinar, ólakökur, höfðingjar, IKEA-deig, kókostoppar, kókoskúlur, engiferkökur, viktoríukökur, rífstoppar, hafrakossar, ostastangir, sírópskökur, lappir og fuglsaugu. Ljósmynd/Unsplash
Þrjú efstu sætin
Þegar um 180 Íslendingar voru spurðir í októbermánuði síðastliðnum hver eftirlætissmákökutegundin þeirra væri, mátti líta afgerandi niðurstöður. Sörur eru vinsælastar. Fólk á öllum aldri frá 18-80 ára nefndi kökurnar sem eftirlæti, eða um 20 prósent aðspurðra. Lakkrístopparnir verma annað sætið og sér í lagi voru það yngri kynslóðir sem nefndu þá. Fólk yfir fimmtugt vildi margt meina að þeir væru of sætir. Í toppana er vinsælast að setja lakkrískurl, með eða án súkkulaðis. Mömmukökur eru svo í þriðja sæti og koma fast á hæla lakkrístoppanna. Allur aldur nefndi mömmukökurnar og geta því þeir sem halda með því „gamla og góða“ glaðst.
Hversu margar sortir?
Það þekktist á árum áður að allt að 20 sortir væru bakaðar fyrir jólin en í dag eru þær mun færri. Árið 1986 voru það fimm tegundir sem fólk var að baka fyrir jólin samkvæmt könnun sem Hagvangur gerði. Árið 1992 var tegundunum eilítið að fækka, voru þá 4-5. Það sama ár voru sex prósent bakara að útbúa 10 tegundir. Samkvæmt því sem viðmælendur sögðu blaðamanni var fólk ýmist að baka 2-4 tegundir eða kaupa þær tilbúnar í bakaríum og stórmörkuðum. Nokkrir keyptu deigið.
Of sætar í dag
Loftkökur eru svolítið sérstakt fyrirbæri. Þær urðu feikivinsælar á 8. og 9. áratugunum, enda brúnar og hraunaðar eins og eins og öll „seventís“ híbýlatíska þá. Sjálf man undirrituð þessa dýrð hjá Siggu frænku og margir af eldri kynslóðunum segja að þær hafi verið það besta í barnsminninu. Í dag hafa fáir lyst á þeim því þær séu svo sætar. Og yngri kynslóðir – þær þekkja varla kökurnar. En yngsta fólkið er einmitt svolítið í því allra sætasta; súkkulaðibitakökum og lakkrístoppum. Svo kannski þarf að kynna unglingunum loftkökur. Þær gætu fallið í kramið.
Þessar eru líka vinsælar
Súkkulaðibitakökur, vanilluhringir, hálfmánar, hafra- og rúsínukökur, spesíur og gyðingakökur eiga líka upp á pallborðið. Akkúrat í þessari röð á eftir fyrstu þremur sætunum. Merkilegt er hve margir taka það fram að þeir baki piparkökur, það sé fastur liður aðventunnar. En þær fengu aðeins 3 atkvæði sem bestu kökurnar. Spurning hvort piparkökurnar séu, vel skreyttar, allar gefnar jólasveinunum. Hjá yngstu kynslóðinni voru súkkulaðibitakökur, ásamt lakkrístoppum, langvinsælastar. Og þær eru bæði vinsælar með dökku súkkulaði og hvítu og einstaka vilja að hnetur og hnetusmjör sé í uppskriftunum. Þarna gætir ef til vill amerískra áhrifa, dísætar uppskriftir eru eftirsóttar.
Sigurvegarinn á stutta sögu
Að sörur skuli sigra er svolítið merkilegt. Ólíkt mömmukökunum, sem eiga nærri 100 ára baksturssögu hérlendis, eru þær nefnilega miklu nýrri af nálinni í okkar bakstri. Sú fremsta í matarsögu Íslendinga, Nanna Rögnvaldardóttir, hefur kynnt sér sörur vel og bent á það að lengi vel hafi verið talið að Ástríður Guðmundsdóttir hafi fyrst birst uppskrift að sörum á íslensku, í Gestgjafanum, seint á 9. áratugnum. Það var aftur á móti í Morgunblaðinu sem uppskriftin birtist í fyrsta skipti, árið 1980, og er sú uppskrift nafnlaus. Nanna telur þó að uppskrift Ástríðar hafi verið sú sem breiddi út fagnaðarerindið og hafi haft áhrif á eldhús landsins áratugina á eftir. Margir viðmælendur Morgunblaðsins nefndu að þeir vissu ekki hvort sara væri smákaka eða einhvers konar konfekt. Þegar leitað var til Nönnu um hvort sörur væru raunverulega smákökur sagði hún að hún hefði sjálf verið efins þegar hún birti söruuppskrift í matreiðslubók fyrir útlendinga. En íslenska hefðin segi smákökur svo það er komið leyfi fyrir þeirri nafngift.
Og svo var sælgæti troðið í allt
Í áratugi var lítið brugðið út af vananum. Það er ekki fyrr en í seinni tíð sem farið var að klína fílakaramellum, lakkrís, rolo, trompi, þristum, rís og alls konar sælgæti í deigin og þykir sumum nóg um sætu ofan á sætu. Árið 1994 var efnt til smákökusamkeppni í Vikunni og uppskriftin sem vann var með lakkrískurli. Stuttu síðar birtist frétt þess efnis að lakkrískurl hefði selst upp víða um land. Í dag má sjá sælgæti í ólíklegustu uppskriftum og meira að segja má finna uppskriftir með Dumle-karamellum í sörukreminu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗







