Sérsveitin kölluð til vegna rangra sakargifta

Sakargiftirnar leiddu til þess að lögregla leitaði að vopnum á heimili mannsins með aðstoð sérsveitar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Unnar Sigurð Hansen í dag í tveggja ára og átta mánaða fangelsi fyrir að hóta mæðginum ofbeldi, bera soninn röngum sökum og brjóta ítrekað gegn umferðarlögum.

Hann var einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í tveimur tilvikum.

Unnar sagði lögreglu að sonurinn hefði selt sér kókaín og geymdi hlaðna skammbyssu undir rúmi sínu.

Sakargiftirnar leiddu til þess að lögregla leitaði að vopnum á heimili mannsins með aðstoð sérsveitar. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að Unnar hefði vísvitandi borið hann röngum sökum.

Hringdi dyrabjöllu áður en hótanirnar bárust

Skömmu eftir miðnætti 9. maí 2025 kom Unnar ásamt öðrum manni að heimili sonarins og hringdi dyrabjöllu. Koma þeirra sást á upptöku sem lá fyrir í málinu.

Dagana 17., 20. og 23. maí sendi Unnar móður mannsins sms-skilaboð með hótunum í garð þeirra beggja. Hann sagðist vita hvar þau byggju og hótaði að koma þangað og beita ofbeldi.

Unnar játaði hjá lögreglu að hafa sent skilaboðin og þau fundust við leit í síma hans. Fyrir dómi kvaðst hann hvorki kannast við að hafa sent þau né við símanúmerin sem um ræddi. Hann gaf enga skýringu á breyttum framburði.

Í gögnum málsins voru jafnframt skjáskot af samskiptum hans við barnsmóður sonarins sem sýndu að hann hafði samið drög að hótunum í garð mannsins.

Dómurinn taldi sannað að skilaboðunum hefði verið ætlað að vekja ótta hjá mæðginunum um líf sitt, heilsu og velferð. Hann taldi að koma Unnars að heimili sonarins hefði verið til þess fallin að auka á óttann þegar hótanirnar bárust.

Lýsti áformum sínum í skilaboðum

Unnar bar sakirnar á soninn 26. maí þegar lögregla tók af honum skýrslu vegna hótananna. Auk þess að saka manninn um kókaínsölu og segja hann geyma hlaðna skammbyssu fullyrti Unnar að hann geymdi fíkniefni og peninga.

Fyrir dómi kvaðst Unnar ekki þekkja manninn og gaf engar skýringar á framburði sínum hjá lögreglu.

Við mat á ásetningi Unnars leit dómurinn til skilaboða sem hann hafði sent barnsmóður mannsins 7. maí. Þar sagðist hann ætla að koma fíkniefnum fyrir í bíl mannsins og segja lögreglu að hann hefði selt sér þau.

Dómurinn taldi að skilaboðin sýndu einbeittan ásetning Unnars til að bera manninn röngum sökum. Af samskiptunum mátti að mati dómsins ráða að Unnar hefði með því ætlað að styðja málstað konunnar í forsjárdeilu.

Ók sjö sinnum sviptur ökurétti

Unnar var sakfelldur fyrir að aka sjö sinnum sviptur ökurétti frá janúar 2025 til mars 2026. Í sex tilvikum var hann jafnframt óhæfur til að stjórna bifreið vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og í einu þeirra einnig vegna áhrifa slævandi lyfja. Dómurinn byggði niðurstöðu sína um þau tilvik á lögregluskýrslum og niðurstöðum blóðrannsókna.

Í sjöunda tilvikinu ók Unnar utan í bifreið sem kom úr gagnstæðri átt skammt austan við Varmahlíð í Skagafirði. Verjandi hans taldi ósannað að Unnar hefði verið við stýrið. Dómurinn taldi lögregluskýrsluna og staðfestingu lögreglu á því hver ökumaðurinn var nægja til sakfellingar.

Milljón króna í miskabætur

Við ákvörðun refsingar tók dómurinn mið af því að Unnar hafði ítrekað verið dæmdur fyrir sambærileg umferðarlagabrot. Dómurinn leit einnig til þess hversu þung refsing liggur við brotunum sem Unnar bar manninn röngum sökum um.

Unnar hlaut 16 mánaða fangelsisdóm í október 2025 og var refsing vegna brotanna sem hann framdi fyrir þann dóm ákveðin sem hegningarauki við hann. Fangelsisrefsingin er óskilorðsbundin og ævilöng svipting ökuréttar hans var áréttuð.

Unnari var gert að greiða móðurinni 400 þúsund krónur og syninum 600 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta.

Við ákvörðun bóta til sonarins leit dómurinn einnig til þess að röngu sakargiftirnar leiddu til húsleitar og voru til þess fallnar að skaða orðspor hans. Unnar greiðir hvoru þeirra 300 þúsund krónur í málskostnað og rúmar 2,5 milljónir króna í sakarkostnað.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab