Þorgerður Katrín: Þurfum að passa upp á EES-samninginn – ekki bara í orði heldur líka á borði
Stjórnarandstöðuflokkarnir hljóta að slást í lið með ríkisstjórninni við að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem tryggir þjóðinni eignarhald yfir auðlindum sínum, þar með talið fiskinum í sjónum, nema stórar yfirlýsingar þeirra í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi verið húmbúkk eitt og fals. Þorgarður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
„Þau gleyma svolítið því út á hvað finnst mér pólitíkin ganga og það sem við horfum á er að verkefni Viðreisnar er einmitt að halda áfram að vera með þessa áttavita, almannahagsmunir og frelsi, og þess vegna, talandi um almannahagsmuni, skilaboðin sem ég tek meðal annars úr umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna er að við þurfum að gæta mjög vel að EES-samningnum, gæta mjög vel að halda öllum dyrum opnum.“
Nú er sótt að honum.
„Já, nú er sótt að honum og menn reyna alltaf að finna einhverjar aðrar leiðir til þess að hlaupast undan ábyrgð. Það er alveg ljóst að þessi ríkisstjórn, hún er mjög meðvituð um sína ábyrgð og er að passa upp á alþjóðasamskiptin. Við erum búin að fjölga núna fríverslunarsamningum. Við eigum í mjög góðu samtali við Bandaríkin um ýmis mál, hvort sem það eru varnir og öryggismál og líka viðskipti og fleira. En við þurfum líka að passa upp á markaðinn okkar í Evrópu. Það er 70% af okkar útflutningsafurðum sem fer þangað og við þurfum að liðka fyrir því til dæmis að íslenskar sjávarafurðir sem eru, þegar samningurinn tók upphaflega gildi, þá féllu 95% af íslensku sjávarafurðunum undir samninginn og tollfrelsið. Nú er það bara eitthvað í kringum 65%.
Það er út af því að við erum komin með miklu meiri úrvinnslu á afurðum úr sjó, úr fiskinum sem við veiðum, en líka við erum komin með fiskeldið og ég vil sjá okkur sækja fram þar og það sama á ákveðnum sviðum. Getum við gert hagfellda samninga á sviði landbúnaðar sem treystir íslenskan landbúnað en eykur líka neytendaverndina? Þetta tek ég með mér úr umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Við þurfum að passa upp á EES-samninginn og ekki bara í orði heldur líka á borði.
Hitt er síðan almannahagsmunirnir eins og auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Það er eitthvað sem Viðreisn, frá því að ég byrjaði Viðreisn, við höfum talað um þetta og við munum halda áfram að ræða og við munum leggja fram tillögu um það að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá til þess einmitt að svara þessu ákalli sem ég skynjaði líka og ég vona að sérhagsmunaöflin hafi ekki verið að spila á auðlindaþráðinn bara til þess að vekja upp þjóðerniskennd sem má síðan ekki fylgja eftir. Og þá skulum við bara taka þetta alla leið.
Ég geri ráð fyrir því, nema þetta hafi bara allt verið húmbúkk og fals í allri umræðunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni, að flokkar eins og Framsókn, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur, það er hægt að tala um Miðflokk 1 og Miðflokk 2. Að þeir komi með okkur í það að tryggja raunverulega að þjóðin eigi auðlindirnar, hina sameiginlegu auðlind, og það verði þannig almennilegt auðlindaákvæði sett í stjórnarskrá. Þetta er mikið metnaðarmál fyrir okkur í Viðreisn og við þurfum að draga það fram. Og síðan bara heldur ríkisstjórnin áfram. Við erum þéttari sem aldrei fyrr.
Það er alveg ljóst að hópur þingflokks Viðreisnar er mjög einbeittur, ábyrgðarfullur, í því að fylgja eftir því sem við erum að gera í ríkisstjórninni og það er mjög gott samband á milli ekki bara okkar Ingu og Kristrúnar heldur líka finnst mér gott að sjá eins og bara á sameiginlegum þingflokksfundi núna í vikunni með öllum stjórnarflokkunum að finna svona kraftinn og metnaðinn og ábyrgðarkenndina hjá fólki, að við erum í miðri á og við ætlum að klára þetta ferðalag og við fórum í þetta ferðalag fyrir þjóðina, ekki fyrir einhverjar litlar grúppur hér og þar í samfélaginu sem eiga meira og minna hálft Ísland og jafnvel allt, heldur almenning í landinu. Þess vegna er þetta ferðalag á ríkisstjórninni í ýmsum málum.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗