Senegal aftur Afríkumeistari eftir nýjustu vendingar
Senegal er á ný Afríkumeistari í fótbolta eftir að Alþjóðaíþróttadómstóllinn, CAS, úrskurðaði þjóðinni í vil í dag.
Senegal vann Marokkó 1-0 eftir framlengingu í umtöluðum úrslitaleik í janúar. Leikmenn Senegal gengu af velli í mótmælaskyni eftir að Marokkó fékk vítaspyrnu undir lok venjulegs leiktíma og sneru ekki aftur fyrr en um korteri síðar.
Í mars tók afríska knattspyrnusambandið titilinn af Senegal og dæmdi Marokkó 3-0 sigur. Niðurstaða CAS er hins vegar að láta ákvörðun dómara leiksins að standa.
Senegal hefur því endurheimt Afríkumeistaratitilinn, rúmum tíu mánuðum eftir úrslitaleikinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗