Fundu erfðabreytileika sem tengist auknum vöðvastyrk
Aðalheiður Elín Lárusdóttir og Unnur Diljá Teitsdóttir eru fyrstu höfundar greinarinnar. Ljósmynd/Aðsend
Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa ásamt alþjóðlegum hópi vísindamanna fundið sjaldgæfan erfðabreytileika sem tengist auknum vöðvamassa og meiri vöðvastyrk. Niðurstöðurnar gætu nýst við þróun lyfja gegn vöðvarýrnun og öðrum sjúkdómum sem valda tapi á vöðvamassa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu, en niðurstöður rannsóknarinnar birtast í vísindatímaritinu Nature Communications.
Um er að ræða umfangsmikla rannsókn á erfðafræðilegum þáttum sem tengjast vöðvamassa. Alls fundu vísindamennirnir 63 svæði í erfðamenginu sem tengjast vöðvamassa.
Þar á meðal var sjaldgæfur erfðabreytileiki í svokölluðu MSTN-geni sem hafði sérstaklega sterk tengsl við aukinn vöðvamassa í fótleggjum og meiri vöðvastyrk.
Virkar eins og bremsa á vöðvavöxt
MSTN-genið stýrir myndun próteinsins mýóstatíns, sem hefur það hlutverk að takmarka vöxt beinagrindarvöðva.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að erfðabreytileikinn dragi úr virkni próteinsins og stuðli þannig að auknum vöðvavexti.
Rannsóknir á blóðsýnum sýndu að hlutfall virks mýóstatíns var lægra hjá þeim sem báru erfðabreytileikann, þótt heildarmagn próteinsins í blóði þeirra væri meira.
Gæti nýst við þróun lyfja
Vöðvamassi og vöðvastyrkur skipta miklu máli fyrir hreyfigetu og almenna heilsu, en hvort tveggja getur minnkað með hækkandi aldri, vegna sjúkdóma eða í tengslum við þyngdartap.
Mýóstatín hefur því lengi verið rannsakað sem mögulegt skotmark lyfja sem ætlað er að vinna gegn vöðvarýrnun.
„Við höfum fundið sjaldgæfan erfðabreytileika sem virðist draga úr virkni mýóstatínspróteinsins og tengist bæði meiri vöðvamassa og auknum styrk. Niðurstöðurnar hjálpa okkur að skilja betur hvaða áhrif langvarandi hömlun þessa próteins kann að hafa hjá fólki. Þær geta þannig nýst bæði við þróun lyfjameðferða og við mat á öryggi þeirra,“ er haft eftir þeim Aðalheiði Elínu Lárusdóttur og Unni Diljá Teitsdóttur, fyrstu höfundum vísindagreinarinnar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗