Vill að Alþingi ræði eftirlit með gervigreind
Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu um gervigreind á Alþingi. Snorri Másson, þingmaður flokksins, greindi frá beiðninni undir liðnum störf þingsins í dag.
Hann vill fá svör um hvernig íslensk stjórnvöld hyggjast fylgja eftir alþjóðlegu ákalli um eftirlit með öflugustu gervigreindarlíkönunum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er meðal þeirra leiðtoga sem standa að ákallinu, sem birt var í september. Þar er lögð áhersla á að gervigreind verði áfram undir stjórn og eftirliti manna.
Kallað er eftir því að fyrirtæki láti öflugustu líkönin sæta skyldubundnum öryggisprófunum og óháðu mati áður en þau eru tekin í notkun. Stjórnvöld eru jafnframt hvött til að samræma öryggisstaðla og deila upplýsingum um alvarleg öryggisatvik.
Vill ræða hvort setja eigi takmarkanir
Snorri sagði að í stefnumótun íslenskra stjórnvalda væri lögð töluverð áhersla á að greiða fyrir nýtingu gervigreindar. Hann sagði tækninni fylgja tækifæri en taldi hraða þróunarinnar kalla á ítarlegri umræðu um áhrif hennar á samfélagið. Hann spurði hvort svo öflug tækni ætti að sæta ströngu eftirliti eða takmörkunum.
„En úr því að við erum í raun stödd núna í algerlega nýjum veruleika er kannski ekki nóg að ræða bara um það hvernig við fínpússum ýmis útfærsluatriði á þessu sviði.
Líklega er tímabært að eiga dýpri umræðu um þær grundvallarbreytingar sem eru í þann mund að verða á mannlegu samfélagi og hvort við Íslendingar séum ekki þeirrar skoðunar að svona máttug tækni þurfi t.d. að sæta ströngu eftirliti eða takmörkunum,“ sagði Snorri í ræðu sinni.
Í október skilaði starfshópur stjórnvalda skýrslunni Gervigreind til góðs. Hópnum var falið að leggja mat á stefnu og aðgerðir stjórnvalda á sviði gervigreindar og leggja til úrbætur. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um örugga notkun gervigreindar hjá hinu opinbera.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗