Bjarka fórnað í Lundúnum
Bjarki Hrafn Garðarsson var í byrjunarliði þýska liðsins Borussia Dortmund sem tapaði fyrir enska liðinu Arsenal, 3:2, í Evrópukeppni unglingaliða í fótbolta í dag.
Bjarki var tekinn af velli um miðjan fyrri hálfleik eftir að Aaron Held fékk rautt spjald fyrir að ræna upplögðu marktækifæri. Þá var staðan markalaus.
Dortmund komst engu að síður í 2:0 þrátt fyrir liðsmuninn en Arsenal sneri leiknum við. Josh Ogunnaike skoraði sigurmarkið á 83. mínútu.
Bjarki, sem er sextán ára, gekk til liðs við Dortmund frá Stjörnunni í sumar og hefur verið drjúgur við markaskorun hjá unglingaliði félagsins.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗