Nýir sjálfsafgreiðslukassar ryðja úr vegi hindrunum
Krónan hefur tekið í notkun nýja gerð sjálfsafgreiðslukassa sem eru sérstaklega hannaðir með þarfir blindra, sjónskertra og fólks í hjólastól í huga.
Að sögn Krónunnar eru kassarnir þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi. Þeir hafa þegar verið teknir í notkun í verslunum keðjunnar í Lindum, Grafarholti og á Höfn.
Markmiðið er að gera fleirum kleift að versla sjálfstætt án þess að þurfa að reiða sig á aðstoð starfsfólks eða annarra.
Öryrkjabandalag Íslands kom að prófunum á kössunum og veitti endurgjöf við þróun þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu frá Krónunni.
Kassarnir eru útbúnir sérstöku snerti- og takkaborði og veita blindum og sjónskertum leiðsögn með tali. Ljósmynd/Aðsend
Veita leiðsögn með tali
Nýju kassarnir eru meðal annars útbúnir sérstöku snerti- og takkaborði sem gerir blindum og sjónskertum kleift að stýra afgreiðslunni án þess að þurfa að reiða sig eingöngu á snertiskjá.
Kassarnir veita jafnframt leiðsögn með tali í gegnum afgreiðsluferlið, allt frá því að vörur eru skannaðar þar til greitt er fyrir þær.
Við hönnun kassanna var einnig hugað sérstaklega að hæð afgreiðsluborðsins og staðsetningu skjás, poka og ruslakörfu til að auðvelda fólki í hjólastól aðgengi.
„Okkur finnst mikilvægt að allir viðskiptavinir geti verslað á eigin forsendum og upplifi sjálfstæði í verslunarferðinni. Þess vegna lögðum við áherslu á að þróa þessa lausn með fólkinu sem þarf á henni að halda og hlusta á þeirra reynslu,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

