Bruno horfir til Ítalíu og Spánar

Bruno Fernandes svekktur eftir tap United gegn Liverpool um helgina.

Bruno Fernandes svekktur eftir tap United gegn Liverpool um helgina. AFP/Paul Ellis

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United og miðjumaður portúgalska landsliðsins í fótbolta, horfir til Spánar og Ítalíu en samningur hans við Manchester United rennur út í sumar.

„Mig langar að upplifa spænsku deildina og berjast um stóra titla á Ítalíu,“ sagði Fernandes við portúgölsku sjónvarpsstöðina Canal 11 í fyrra. „Ég hef sterk tengsl við Ítalíu. Dóttir mín fæddist þar.“

Fernandes lék með Novara, Udinese og Sampdoria á Ítalíu áður en hann gekk til liðs við Sporting.

Framtíð hans hjá United er enn óljós en hann hefur hingað til hafnað nýjum samningstilboðum enska félagsins.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab