Sagðist hafa séð djöfulinn þrisvar

Frans páfi sagðist í dagbókarfærslum sínum hafa séð djöfulinn þrisvar sinnum á ævinni. AFP/Tiziana Fabi

Frans páfi, sem lést í apríl í fyrra, sagðist hafa séð djöfulinn þrisvar sinnum á ævinni og í eitt skipti séð innganginn að helvíti. Þetta kemur fram í persónulegri dagbók páfans, en brot úr henni voru birt í nýrri bók sem kom út í dag.

Bókin nefnist The Private Diary of Pope Francis og er eftir argentínska kardínálann Victor Manuel Fernandez, sem fer fyrir trúarkenningadeild Vatíkansins. Hún hefur að geyma brot úr dagbók sem Frans hélt á árunum 1992 til 2024.

Fernandez segir Frans hafa óskað eftir að hann kæmi skrifunum á framfæri við almenning. Eftir andlát páfans fékk kardínálinn leyfi Leós XIV páfa til að birta hluta þeirra.

Sá eld í augum djöfulsins

Í dagbókarfærslu frá 24. janúar 2021 lýsir Frans þremur atvikum þar sem hann taldi sig hafa séð djöfulinn í eigin persónu.

Fyrsta atvikið átti sér stað um 15 árum áður, þegar hann sá djöfulinn út um bílrúðu. Hann sagðist aldrei geta gleymt augnaráðinu, sem hefði verið bæði ógnandi og tælandi.

Í annað sinn sá hann djöfulinn í kapellu Karmelítareglunnar. Þá segir hann að djöfullinn hafi horft á hann með augum sem líktust eldslogum.

Þriðja atvikið varð á fundi í Róm eftir heimsókn til Chile. Þar sagðist Frans bæði hafa séð djöfulinn og heyrt rödd hans. Hann lýsti henni sem sigurvissri og ógnvekjandi.

Í dagbókarfærslu frá 7. júní 2018 greinir Frans jafnframt frá því að hann hafi séð innganginn að helvíti kvöldið áður, þegar hann var að búa sig undir svefn. Sýnin hefði skelft hann svo mjög að hann greip til talnabandsins til varnar.

Í annað sinn sá hann djöfulinn í kapellu Karmelítareglunnar.

Í annað sinn sá hann djöfulinn í kapellu Karmelítareglunnar. AFP/Alberto Pizzoli

Gagnrýndi sjálfan sig harðlega

Dagbókin varpar einnig ljósi á sjálfsgagnrýni páfans. Þar fjallar hann meðal annars um eigin reiði, öfund og hroka og lýsir eftirsjá að því að hafa hunsað drukkinn mann sem ávarpaði hann á göngu.

Frans velti einnig ítrekað fyrir sér dauðleikanum og hversu skammur tími kynni að vera eftir af ævinni. Þegar hann var 65 ára skrifaði hann að hann væri þegar farinn að telja niður til æviloka.

Í dagbókinni eru 86 síður sem Frans skrifaði áður en hann var kjörinn páfi árið 2013 og 55 síður frá páfatíð hans.

Ein stysta færslan er dagsett 21. júlí 2013. Þar skrifaði hann einfaldlega að hann hefði verið kjörinn páfi 13. mars sama ár.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab