Snorri og Nadine fögnuðu með Stefáni Mána
Hjónin Snorri Másson þingmaður Miðflokksins og Nadine Guðrún Yaghi hlaðvarpsstjarna mættu. Ljósmynd/Aðsend
Rithöfundurinn Stefán Máni fagnaði 30 ára rithöfundaafmæli á dögunum og bauð í útgáfuboð í tilefni af nýjust bók sinni,GLEYM MÉR EI.
Um er að ræða 14. bókina um Hörð Grímsson sem lesendur eru hrifnir af. Teitið fór fram á Reykjavík Röst og var vel mætt í boðið.
Leikarinn Hallgrímur Ólafsson sá um að stýra veislunni og sjá til þess að það væri ennþá meira gaman.
Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðingur, Snorri Másson þingmaður og Nadine Guðrún Yaghi fjölmiðlastjarna og Reynir Finndal Grétarsson rithöfundur og fjárfestir voru á meðal gesta.
Magnús Theódór Sveinsson, Eysteinn Þórðarson, Johnny Turtiainen og Ólafur Már Kristjánsson. Ljósmynd/Aðsend
Helgi Guðlaugsson, Stefán Máni, Heiðdís Lilja Magnúsdóttir og Jóna Bryndís Guðbrandsdóttir. Ljósmynd/Aðsend
Johnny Turtiainen, Óli Már Kristjánsson, Ragnar Sólberg og Guðrún Kristín Guðmannsdóttir voru í stuði. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗









