Þröngur fatnaður á eiginkonu Ronaldo vekur gríðarlega athygli
Georgina Rodriguez, eiginkona knattspyrnustjörnunnar Cristiano Ronaldo, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að hafa birt nýjar myndir af sér í þröngum æfingafatnaði.
Georgina, sem er 32 ára, birti tvær myndir á Instagram þar sem hún klæddist svörtum æfingagalla og hvítum íþróttaskóm.
Á myndunum sýndi hún árangurinn af æfingunum og vakti glæsilegur giftingarhringur hennar einnig athygli.
Georgina er með rúmlega 77 milljónir fylgjenda á Instagram og er ein vinsælasta knattspyrnueiginkona heims á samfélagsmiðlum.
Hún og Ronaldo gengu í hjónaband í Portúgal í ágúst síðastliðnum eftir að hafa verið saman í tæpan áratug.
Parið kynntist í Madríd árið 2016 þegar Ronaldo lék með Real Madrid og Georgina starfaði í Gucci-verslun.
Þau eiga saman dæturnar Alana Martina, sem fæddist árið 2017, og Bellu Esmeröldu, sem fæddist árið 2022.
Fjölskyldan býr nú í Sádi-Arabíu þar sem Ronaldo leikur með Al-Nassr.
Portúgalinn, sem er 41 árs, nálgast nú sögulegan áfanga á ferlinum en hann hefur skorað 986 mörk og vantar aðeins 14 til að ná þúsund mörkum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗