Blængur fór hringinn í túr sínum

Blængur á siglingu.

Blængur á siglingu. Ljósmynd/Síldarvinnslan

Frystitogarinn Blængur NK landaði í Neskaupstað í gær að lokinni 26 daga veiðiferð.

„Aflinn í túrnum var 602 tonn upp úr sjó og var aflaverðmætið rúmar 394 milljónir króna,“ segir á vef Síldarvinnslunnar (SVN).

Fram kemur að fyrri hluta túrsins hafi Sigurður Hörður Kristjánsson verið skipstjóri en Lúðvík Emil Arnarsson seinni hlutann.

Á vefnum segir Lúðvík að ætlunin hafi verið að leggja áherslu á að veiða ýsu og ufsa.

„Við byrjuðum túrinn fyrir norðan land og héldum síðan á Vestfjarðamið. Þarna var leitað að ufsa og ýsu og við urðum varir við ufsa en ýsan fannst varla. Að þessu loknu var farið í Víkurálinn í karfa,“ segir hann.

Síðan hafi verið leitað að ufsa suður af landinu með heldur litlum árangri.

„Næst á dagskrá var að reyna við ýsu fyrir austan land en loks var farið í þorsk í Litladýpi og Vonarbrekku.“

Undir lok túrsins hafi svo verið veitt í Seyðisfjarðardýpinu.

„Aflinn í túrnum var mest þorskur eða 160 tonn og síðan vorum við með 150 tonn af karfa og 90 tonn af gulllaxi en minna af öðrum tegundum.“

Lúðvík segir veður hafa verið fjarri því að vera skemmtilegt í þessum túr.

„Við gátum alls ekki alltaf verið þar sem við vildum vera. Þessum hringtúr um landið lauk þó í þokkalegasta veðri í Seyðisfjarðardýpinu,“ segir hann.

Blængur heldur á ný til veiða í kvöld, að því er fram kemur í færslu SVN.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab