Segist bera fullt traust til Sigurjóns
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segist bera fullt traust til Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Flokks fólksins, sem formanns fjárlaganefndar Alþingis.
Hann segir Sigurjón sjálfan þurfa að svara spurningum um sölu á hlut hans í strandveiðiútgerðinni Sleppu ehf. og hvers vegna kaupunum var síðar rift.
Eyjólfur var spurður að loknum ríkisstjórnarfundi í dag hvort Sigurjón nyti enn óskoraðs trausts til að gegna formennsku í nefndinni. Hann svaraði því játandi, sagðist ekkert athugavert sjá við að Sigurjón gegndi formennskunni og vísaði til svara hans í fjölmiðlum.
Kaupverðið var aldrei greitt
Morgunblaðið greindi frá því í gær að Sigurjón og eiginkona hans hefðu í apríl í fyrra selt 51% hlut í Sleppu fyrir 255 þúsund krónur. Samkomulag náðist um að rifta kaupunum í mars síðastliðnum. Þá hafði kaupandinn ekkert greitt af kaupverðinu.
Sigurjón var formaður atvinnuveganefndar þegar samið var um söluna og eignarhlutur hans í útgerðinni hafði vakið spurningar um mögulega hagsmunaárekstra vegna umfjöllunar nefndarinnar um strandveiðar.
Í viðtali við Vísi í fyrra nefndi Sigurjón 16 til 18 milljónir króna í tengslum við sölu á hlut sínum. Morgunblaðið greindi frá því í dag að sérstakt samkomulag, sem gert var samhliða kaupunum, hefði kveðið á um að Sleppa greiddi hjónunum tíu milljónir króna og afhenti þeim skuldabréf að fjárhæð 16 milljónir til uppgjörs á skuldum félagsins við þau. Að sögn blaðsins verður ekki ráðið af ársreikningi Sleppu fyrir árið 2025 að skuldauppgjörið hafi farið fram með þeim hætti sem samkomulagið kvað á um.
Vísaði til skýringa Sigurjóns á bilun
Spurður hvort Sigurjón hefði greint rétt frá viðskiptunum og hvort salan hefði leyst úr mögulegum hagsmunaárekstrum vísaði Eyjólfur til þess að Sigurjón hefði sagt í fjölmiðlum í gær að kaupin hefðu gengið til baka vegna bilunar í bátnum.
Blaðamaður benti á að í riftunarsamkomulaginu sem Morgunblaðið birti væri vísað til breyttra persónulegra haga kaupandans. Þar væri bilunar í bátnum ekki getið. Eyjólfur sagðist skilja skýringu Sigurjóns og kvaðst hvorki hafa upplýsingar um samningana né forsendur til að svara fyrir þá.
Blaðamaður vísaði einnig til ummæla Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, þegar hann spurði Eyjólf um traust hans til Sigurjóns.
Bergþór sagði í samtali við mbl.is í gær að hann teldi líklegast að aldrei hefði staðið til að eignarhald á félaginu breyttist í reynd.
Eyjólfur sagði að beina yrði því til Sigurjóns sjálfs hvort hann hygðist veita Morgunblaðinu viðtal um málið. Spurður um samskipti stjórnmálamanna við fjölmiðla sagðist Eyjólfur sjálfur engar athugasemdir hafa gert við fréttaflutninginn. Hann sagði fjölmiðla gegna mikilvægu hlutverki og lagði áherslu á að vandað væri til umfjöllunar um málið.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗