Norðmenn horfa til eldis utar á hafi

Frá samráðsfundi norskra stjórnvalda með fulltrúum eldisfyrirtækja í Stjørdal í Noregi 17. nóvember síðastliðinn. Ljósmynd/Sjømat Norge

Norsk stjórnvöld hafa á ný kynnt áform um að opna hafsvæði fyrir laxeldi utar á hafi en óvissa um skattlagningu og leyfisveitingar er áfram sögð tefja uppbyggingu greinarinnar.

Jonas Gahr Støre forsætisráðherra og Marianne Sivertsen Næss sjávarútvegsráðherra kynntu málið á fundi um úthafseldi í Stjørdal í Noregi.

Í nýju fréttabréfi SFS er vitnað í umfjöllun iLaks þar sem bent er á að umrædd hafsvæði hafi þegar árið 2019 verið skilgreind sem möguleg eldissvæði.

Áður en fyrirtæki geti ráðist í stórfelldar fjárfestingar þurfi hins vegar að koma til skýrt leyfisveitingakerfi og fyrirsjáanlegar reglur um skattlagningu.

Hvort tveggja vanti enn.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab