HM í hættu hjá Viggó?

Viggó Kristjánsson er meiddur.

Viggó Kristjánsson er meiddur. mbl.is/Karítas

Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, glímir aftur við meiðsli í hné og óvíst er hvenær hann getur snúið aftur til keppni. Félagslið hans Erlangen í Þýskalandi greindi frá á heimasíðu sinni.

Um er að ræða hnéð sem Viggó gekkst undir aðgerð á hér á landi. Samkvæmt Erlangen hefur Viggó verið í vandræðum með hnéð allt árið og er óvíst hvenær hann snýr aftur.

Viggó sneri aftur í leikmannahópinn í lok september eftir margra mánaða fjarveru en var ekki með þegar Erlangen tapaði fyrir Balingen, 34:28, á heimavelli á dögunum.

Ísland leikur á HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs og er óvíst hvort Viggó verði leikfær.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab