Áfall fyrir andstæðinga Íslands

Petra Simon verður ekki með á EM.

Petra Simon verður ekki með á EM. Ljósmynd/IHF

Ungverski leikstjórnandinn Petra Simon missir af Evrópumóti kvenna í handbolta í desember eftir að hafa meiðst á öxl í leik Ferencváros gegn danska félaginu Esbjerg í Meistaradeildinni.

Hún þarf ekki að gangast undir aðgerð en á fyrir höndum um sex vikna bataferli. EM hefst 3. desember.

Ferencváros staðfesti að hún myndi missa af Evrópumótinu og sagðist vonast til að hún yrði leikfær á ný á nýju ári.

Ísland, Ungverjaland, Svartfjallaland og Slóvenía eru saman í A-riðli á EM.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab