Vilja tryggja að áfram verði hægt að panta tíma í síma

Sambandið vill jafnframt að fólk geti fengið aðstoð við að nota stafrænar lausnir. Ljósmynd/Colourbox

Landssamband eldri borgara vill að lög tryggi að fólk geti áfram pantað tíma, fengið upplýsingar og átt samskipti við heilbrigðisþjónustuna í síma eða á staðnum, eftir því sem við á.

Sambandið vill jafnframt að fólk geti fengið aðstoð við að nota stafrænar lausnir. 

Þetta kemur fram í umsögn sambandsins um frumvarp heilbrigðisráðherra um Stafræna heilsu. Umsögnin var birt á vef Alþingis í dag.

Sambandið styður markmið frumvarpsins um öruggari og samfelldari heilbrigðisþjónustu. Það vill að Stafrænni heilsu verði falið að tryggja að stafrænar lausnir séu aðgengilegar og einfaldar í notkun. Við hönnun þeirra þurfi meðal annars að taka mið af þörfum fólks með skerta sjón eða færni og þeirra sem eiga erfitt með að nota rafræn skilríki.

Sambandið leggur einnig til að eldra fólk með ólíka reynslu af stafrænni þjónustu fái að prófa lausnirnar áður en þær eru teknar í almenna notkun. Þannig megi kanna hvort fólk geti skráð sig inn, fundið niðurstöður rannsókna og áttað sig á hvert það eigi að leita eftir aðstoð. 

Vilja að fólk sjái hver hefur skoðað sjúkraskrá þess

Í frumvarpinu er lagt til að starfsfólki félagsþjónustu sveitarfélaga verði heimill takmarkaður lesaðgangur að sjúkraskrárupplýsingum þegar sjúklingur nýtur bæði heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu. Aðgangurinn tæki aðeins til þeirra upplýsinga sem starfsfólkið þarf til að sinna þeirri þjónustu sem því hefur verið falin. 

Sambandið telur að takmarkaður aðgangur geti bætt samfellu í þjónustunni. Það nefnir sem dæmi að þegar einstaklingur útskrifast af sjúkrahúsi og fær bæði heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu þurfi nauðsynlegar upplýsingar að berast réttu starfsfólki á réttum tíma. 

Sambandið vill að aðgangur starfsfólks falli niður þegar hans er ekki lengur þörf. Sjúklingar eigi að fá skýrar upplýsingar um hvaða gögn starfsfólkið getur séð og geta með einföldum hætti séð hver hefur skoðað sjúkraskrá þeirra og hvenær.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab