Ók á gangandi mann sem slasaðist alvarlega
Maðurinn hlaut alvarlegan áverka á hægri fótlegg og yfirborðsáverka á hnakka og gekkst undir aðgerð á Landspítala. mbl.is/Ómar Óskarsson
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og brot gegn umferðarlögum.
Konan ók á gangandi mann við brúna yfir Litlu-Laxá á Flúðum og slasaðist hann alvarlega. Henni var gert að greiða 90 þúsund króna sekt fyrir að aka af vettvangi án þess að veita manninum hjálp eða tilkynna lögreglu um slysið.
Dómurinn féll 20. nóvember. Fangelsisrefsingin fellur niður haldi konan almennt skilorð í tvö ár frá uppkvaðningu dómsins. Henni var jafnframt gert að greiða tæpar 1,3 milljónir króna í sakarkostnað.
Var á leið heim úr brúðkaupi
Slysið varð á þriðja tímanum aðfaranótt 14. júlí 2024. Maðurinn var á leið heim úr brúðkaupi ásamt tveimur vinum. Þau gengu hlið við hlið, vinirnir á gangstéttinni og maðurinn á akreininni rétt við gangstéttarkantinn.
Bíllinn nálgaðist aftan frá. Annar vinanna kallaði til mannsins að koma upp á gangstéttina. Hann náði að líta við áður en bíllinn lenti á honum og kastaðist í átt að gangstéttinni. Hann hlaut alvarlegan áverka á hægri fótlegg og yfirborðsáverka á hnakka og gekkst undir aðgerð á Landspítala.
Sagðist þurfa að drífa sig
Konan ók yfir brúna, stöðvaði bílinn og gekk til baka að slysstað. Þar hlúðu vinir mannsins að honum. Annar þeirra hringdi í Neyðarlínuna á meðan hinn batt um fótlegg mannsins til að stöðva blæðinguna.
Konan gaf upp nafn sitt og kennitölu að beiðni vinar mannsins. Dómurinn taldi sannað að hún hefði sagt að hún þyrfti að drífa sig og síðan ekið á brott. Lögreglu tókst að ná tali af henni og finna bílinn síðar um morguninn.
Konan neitaði sök. Hún sagðist hafa reynt að hemla og beygja frá en allt hefði gerst mjög hratt. Hún kvaðst hafa verið stressuð og hvorki áttað sig á alvarleika slyssins né vitað hvað hún ætti að gera.
Ók án nægrar aðgæslu
Dómurinn lagði til grundvallar framburð vitnanna um að maðurinn hefði þegar verið á akreininni þegar bíllinn nálgaðist. Ekkert benti til þess að hann hefði farið skyndilega af gangstéttinni út á akreinina. Vegurinn var blautur og rökkur, en dómurinn taldi birtu hafa verið næga til að sjá gangandi fólk.
Niðurstaðan var að konan hefði ekið án nægrar aðgæslu og að öllum líkindum hraðar en aðstæður leyfðu.
Dómurinn taldi konunni hafa mátt vera ljóst hve alvarlegt slysið var þegar hún kom að manninum þar sem hann lá slasaður. Með því að aka af vettvangi torveldaði hún rannsókn lögreglu. Hefði hún beðið á staðnum hefði lögreglan getað tekið af henni skýrslu strax, skoðað bílinn og kannað stöðu hans og hjólför á vettvangi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/63/0/1630008.jpg)