Má sameina Landhelgisgæsluna og lögregluna?

Sameining Landhelgisgæslunnar og embættis ríkislögreglustjóra gæti torveldað samskipti Íslands við nágrannaríkin, að mati Georgs Kr. Lárussonar, forstjóra Gæslunnar. Hann segir nágrannaríkin greina skýrt á milli lögreglu annars vegar og strandgæslu eða sjóhers hins vegar. Það gæti flækt samstarfið ef ein íslensk stofnun færi með verksvið beggja.

Í Spursmálum er Georg spurður hvort Gæslan og embætti ríkislögreglustjóra væru eitt og sama embættið ef verið væri að byggja starfsemina upp frá grunni í dag.

„Það kann að vera. En svona í alþjóðasamstarfi þá yrði það erfitt,“ svarar hann.

Georg telur sameiningu mögulega en segir að Ísland þurfi að taka mið af því hvernig samstarfsríkin skipuleggja þessi verkefni. Hann nefnir Noreg og Danmörku í því sambandi. Nú þegar sé náið samstarf á milli stofnananna, meðal annars á milli sérsveitar ríkislögreglustjóra og sprengjusveitar Gæslunnar. Sveitirnar veiti hvor annarri aðstoð þegar þörf krefur.

Varðskipin íslensku koma að margvíslegum verkefnum og eru útvörður íslenska ríkisins á höfunum. mbl.is/Birta Margret Björgvinsdottir

Vill festa hlutverk Gæslunnar í lögum

Georg segir brýnt að skýra hlutverk Landhelgisgæslunnar í öryggis- og varnarmálum. Gæslan heyrir undir dómsmálaráðuneytið en sinnir verkefnum á þessu sviði samkvæmt þjónustusamningi við utanríkisráðuneytið. Samningurinn gildir að sögn Georgs til eins árs.

Honum þykir sá tími of skammur fyrir svo umfangsmikinn málaflokk. Gæslan vinni nú að fimm ára áætlun og þurfi að geta byggt hana á skýrum forsendum um hvaða verkefnum stofnuninni sé ætlað að sinna. Þá þurfi að liggja fyrir hvaða ábyrgð hvíli á öðrum stofnunum.

Georg segir vinnu við endurskoðun laga um Landhelgisgæsluna, sem eru frá 2006, vera að hefjast. Þar gefist færi á að skýra verksvið hennar og festa varnarmálahlutverkið í sessi. Enn þurfi að finna út úr því hvernig málaflokknum verði skipað milli ráðuneyta.

Hann segir mikilvægt að nýta saman þann búnað og þá þekkingu sem þegar er til staðar, þar á meðal skip, ratsjár, fjarskiptabúnað og þjálfað starfsfólk. „Þetta er bara þjóðaröryggismál, hreint og klárt,“ segir Georg.

Viðtalið við Georg má nálgast í heild sinni hér:

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab