Vilja afgreiða lög um lagareldi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, ræddi stöðu frumvarps nýrra laga um lagareldi á opnum fundi á Ísafirði um helgina. mbl.is/Anton Brink
Ríkisstjórnin er ákveðin í að afgreiða frumvarp um lagareldi í vetur. Þetta hefur Bæjarins besta eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar, á opnum fundi Viðreisnar á Ísafirði sl. laugardag.
Haft er eftir Þorgerði Katrínu að það hafi verið skaðlegt að frumvarp ríkisstjórnarinnar um lagareldi hefði ekki verið gert að lögum á síðasta þingvetri.
„Hún sagði jafnframt að ef það yrði ekki gert í vetur þá myndi málið ekki klárast á þessu kjörtímabili. Það yrði hins vegar að vera einhugur í atvinnugreininni um þingmálið,“ segir í frétt BB.
Um leið er vakin athygli á orðum Þorgerðar Katrínar um að stjórnkerfið þyrfti að búa sig undir áhlaup með það að markmiði að lama stjórnsýsluna frá andstæðingum sjókvíaeldis.
Þar undir væru erlend auðfyrirtæki á borð við Patagonia.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗