„Nei, ég er ekki að sækja um forstjórastarfið“

Brynja Baldursdóttir er stjórnarformaður Landsvirkjunar.

„Og til að svara spurningum sem ég hef verið að fá í morgun. Nei, ég er ekki að sækja um forstjórastarfið hjá Landsvirkjun.“

Þannig hljóma lokaorð Brynju Baldursdóttur, stjórnarformanns Landsvirkjunar, í færslu á LinkedIn þar sem hún tjáir sig um starfslok sín hjá Greiðslumiðlun Íslands.

Brynja hefur verið þar forstjóri í fimm ár. Ásar eignuðust félagið nýlega og segir Brynja að starfslok hennar tengist þeim viðskiptum.

Styr hefur staðið um störf Brynju að undanförnu enda hafa samskipti stjórnar Landsvirkjunar við Hörð Árnason, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins, og Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra þótt umdeild.

Einhverjir gárungar hafa því orðað Brynju við forstjórastarfið eftir að Hörður lét af störfum en hún tekur af öll tvímæli um að slíkt standi ekki til.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab