Vilja endurmeta almenna íbúðakerfið eftir tíu ár

Rósa Guðbjartsdóttir og Árni Helgason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.

Rósa Guðbjartsdóttir og Árni Helgason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Samsett mynd/mbl.is/Karítas

Árni Helgason og Rósa Guðbjartsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, vilja að árangur almenna íbúðakerfisins verði metinn nú þegar tíu ár eru liðin frá gildistöku laga um almennar íbúðir.

Þau vilja kanna hvort kerfið hafi náð markmiðum sínum og hvaða áhrif það hafi haft á fasteignamarkaðinn. Í áliti þeirra eru opinber framlög til kerfisins áætluð ríflega 60 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í áliti fyrsta minni hluta velferðarnefndar Alþingis sem birt var í dag.

Árni og Rósa segjast ekki geta stutt frumvarp sem heimilar ríkinu að greiða allt eða hluta af 12% stofnframlagi sveitarfélaga til almennra íbúða. Samkvæmt frumvarpinu gæti framlag ríkisins numið allt að 35% af stofnvirði íbúðar. Heimildin myndi gilda til ársloka 2027.

Tekjumörk miðast við upphaf leigutíma

Í álitinu benda þingmennirnir á að leigukjör í almenna íbúðakerfinu séu almennt hagstæðari en á almennum leigumarkaði og að úthlutunarskilyrði á borð við tekjumörk gildi við upphaf leigutíma.

Þau telja því mögulegt að leigjendur haldi hagstæðum kjörum þótt fjárhagsstaða þeirra hafi batnað, á sama tíma og fólk í lakari stöðu komist ekki að.

Efast um að framlagið fjölgi íbúðum

Árni og Rósa telja óvíst að heimildin leiði til fjölgunar almennra íbúða við núverandi aðstæður. Byggingaraðilar þurfi áfram á lánsfjármögnun að halda og háir vextir geti hamlað uppbyggingu.

Þau gagnrýna jafnframt að nefndin hafi ekki leitað umsagna helstu hagaðila, þar á meðal sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnana og fjármálastofnana.

Meiri hluti velferðarnefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Hann telur að heimildin geti flýtt uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða, enda hafi þröng fjárhagsstaða sveitarfélaga takmarkað möguleika þeirra á að veita bein stofnframlög. Frumvarpið er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab